Laus störf
Hjá ÍSOR starfar fólk með menntun í jarðfræði, efnafræði, eðlisfræði og verkfræði ásamt rafeindavirkjun.
Engin laus störf eru í boði eins og er en það er velkomið að senda ferilskrá til Guðnýjar Þórsdóttur, starfsmannastjóra ÍSOR, gudny@isor.is
ÍSOR er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki heims í rannsóknum og jarðvísindaþjónustu við jarðhitaiðnaðinn og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt.
ÍSOR og forverar þess hafa í 60 ár verið meðal leiðandi aðila í þróun þeirrar tækni sem gert hefur Ísland að einu fremsta ríki heims í nýtingu jarðhita og útvegað Íslendingum orku á mun lægra verði en hægt hefði verið með öðrum orkugjöfum.
ÍSOR stundar margvíslegar þverfaglegar rannsóknir og veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði jarðhita og jarðvísinda og annast kennslu í jarðhitafræðum.
Starfsmenn eru nú um 80 af 6 þjóðernum.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Reykjavík en jafnframt er rekið útibú á Akureyri. Að auki rekur ÍSOR fyrirtæki í Chile ásamt íslenskri verkfræðistofu.

