Þekking á jarðfræði og umhverfi hafsbotnsins eru forsendur fyrir skynsamlegri nýtingu auðlinda sem þar finnast. Dæmi um auðlindir á hafsbotni: byggingarefni, málmar, jarðhiti og olíu- eða gaslindir.
Hjá ÍSOR starfar hópur jarðfræðinga, jarðeðlisfræðinga og eðlisfræðinga sem hefur á undanförnum áratugum byggt upp sérfræðiþekkingu í öflun og túlkun gagna af hafsbotni. Meðal verkefna má nefna ráðgjöf til stjórnvalda varðandi skilgreiningar landgrunnsins utan 200 sjómílna. ÍSOR hefur tekið þátt í rannsóknum á olíu og gasi fyrir Norðurlandi og verið ráðgjafi við undirbúning sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna.
Þjónusta ÍSOR í hafsbotnsrannsóknum, úrvinnsla og túlkun
- Kortlagning
- Setlagarannsóknir
- Þyngdarmælingar
- Segulmælingar
- Endurkastsmælingar
- Bylgjubrotsmælingar
- Fjölgeislamælingar
Landgrunnsmál
ÍSOR veitir stjórnvöldum vísindalega ráðgjöf vegna afmörkunar landgrunns Íslands. Um er að ræða rannsóknarvinnu, gagnaöflun og túlkun gagna. Auk þess hafa sérfræðingar ÍSOR tekið þátt í að kynna kröfur Íslendinga fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Fræðast nánar um landgrunnskröfur Íslendinga.
Olíurannsóknir
ÍSOR veitir stjórnvöldum sérfræðiaðstoð við undirbúning á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis. Verkið er tvíþætt.
- Að koma upp gagnasafni um landgrunn Íslands vegna leyfisveitinga. Gagnasafnið inniheldur m.a. endurkastsmæligögn úr setlagarannsóknum til olíuleitar, auk gagna úr ýmiss konar vísindaleiðöngrum. Þetta gagnasafn var nýtt til kynningar á svæðinu í svokallaðri Landgrunnsvefsjá, sem var aðgengileg fram til ársins 2019.
- Túlkun á mæligögnum með tilliti til líklegra auðlinda og leggja mat á hvar líkur eru á að finna olíu eða gas. Lesa meira
Kortlagning hafsbotnsins
ÍSOR er virkur þátttakandi í rannsóknarverkefnum, styrktum af innlendum jafnt sem erlendum sjóðum eða orku- og olíufyrirtækjum. Hér að neðan er listi yfir samstarfsverkefni jarðfræðistofnana í Evrópu er snúa að hafsbotnsrannsóknum:
- Kortabók og stafrænn gagnagrunnur um jarðfræði Norðaustur-Atlantshafsins. Á ensku NAGTEC, Northeast Atlantic Geoscience TECtonostratigraphic Atlas.
- Kortlagning landgrunnssvæða. Á ensku EMODnet, Europian Marin Observation Data Network.
- Kortlagning jarðlaga og málmauðlinda á austurströnd Grænlands. Á ensku NORDMIN, Crustal Structure and Mineral Deposit Systems: 3D-modeling of base metal mineralization in Jameson Land and nickel mineralization in Disko-Nuussuaq (Greenland).