Flýtileiðir um vef:

Eldri fréttir

Heimsókn Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra (27.01.2010)
Guðrún Helga Brynleifsdóttir, stjórnarformaður ÍSOR, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR
Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, heimsótti ÍSOR í dag og kynnti sér starfsemina. Í för með henni voru Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, Guðjón Axel Guðjónsson, skriftstofustjóri orkumála og Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir sérfræðingur á skrifstofunni.
Sumarstörf hjá ÍSOR 2010 (27.01.2010)
Sumarstarfsmenn að störfum í Kerlingarfjöllum
ÍSOR hefur um áratugaskeið ráðið til sín nokkurn hóp háskólanema til ýmissa starfa. Undanfarin ár hafa 10-20 nemar verið í sumarstörfum hjá ÍSOR í tvo til þrjá mánuði hver.
Nýja Ísland - Ný sýn á jarðfræði Íslands (15.12.2009)
Ný sýn á jarðfærði Íslands
Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur hjá ÍSOR, heldur fræðsluerindi í Víðgelmi, Grensásvegi 9,
17. desember kl. 13.00 undir yfirskriftinni:
Nýja Ísland - Ný sýn á jarðfræði Íslands.
Samstarfssamningur á milli ÍSOR og orkufyrirtækisins LaGeo í El Salvador (01.12.2009)
El Salvador
Nýverið var skrifað undir samstarfssamning á milli ÍSOR og orkufyrirtækisins LaGeo í El Salvador. Samstarfið felur meðal annars í sér að ÍSOR yfirfari rannsóknir frá San Vicente jarðhitasvæðinu.
Námskeið í forðafræði fyrir frönsku jarðhitastofnunina CFG Services (25.11.2009)
Þátttakendur á jarðhitanámskeiði ásmamt leiðbeinanda.
Dagana 16.-20. nóvember var haldið námskeið um prófanir og mælingar á borholum á vegum ÍSOR að beiðni frönsku jarðhitastofnunarinnar CFG Services.
Námskeið í yfirborðsrannsóknum á jarðhitakerfum, jarðeðlisfræði og jarðefnafræði (05.11.2009)
Þátttakendur á námskeiði í El Salvador.
Nokkrir starfsmenn ÍSOR voru leiðbeinendur á námskeiði á vegum Jarðhitaskólans og LaGeo í El Salvador „Short Course on Surface Exploration for Geothermal Resources“ sem haldið var í lok október í El Salvador.
Útibú ÍSOR tíu ára (27.10.2009)
Bjarni Gautason útibússtjóri ÍSOR á Akureyri bíður gesti velkomna
Um þessar mundir eru liðin tíu ár frá því að fyrirrennari Íslenskra orkurannsókna, Rannsóknasvið Orkustofnunar, setti á laggirnar starfsstöð á Akureyri í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Að því tilefni var haldinn afmælisfagnaður í húsakynnum útibúsins að Rangárvöllum föstudaginn 23. október.
Opinn fundur - Sjálfbær nýting jarðhitans (19.10.2009)
Frá Torfajökulssvæðinu. Ljósm. Guðmundur Ó. Friðleifsson.
Miðvikudaginn 21. október verður haldinn opinn fundur á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu, undir yfirskriftinni Sjálfbær nýting jarðhitans. Fundurinn byrjar kl. 13 og er öllum opinn, en vinsamlegast skráið þátttöku til the@samorka.is

Sjálfbær nýting jarðhita (14.10.2009)
Jarðhiti í Kerlingarfjöllum. Ljósm. Niels Giroud
Greinar um hugtök sem tengjast jarðhita hafa birst í Morgunblaðinu undanfarið og hér má sjá grein um hugtakið sjálfbær nýting, sem mikið er notað í umræðu um auðlindir. Greinin birtist í Morgunblaðinu 7. okt. sl. Aðrar greinar má lesa á slóðinni hér til hægri á síðunni: Greinar um orkumál.
Jarðhitaverkefni í Níkaragva (29.09.2009)
Starfsmenn ÍSOR að störfum í Níkargva.
Skrifað hefur verið undir verksamning milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um jarðhitaverkefni í Níkaragva. Samningurinn felur í sér að ÍSOR veitir sérfræðiaðstoð á sviði jarðhita í Níkaragva á tímabilinu frá 2009 til 2012.
Jarðfræðikortlagning var kynnt á Vísindavöku (29.09.2009)
Vísindavaka 2009
Jarðfræðikort af Suðvesturlandi vakti athygli á Vísindavökunni sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur, föstudagskvöldið 25. september sl. en þar kynntu þau Guðrún Sigríður kortahönnuður og Sigurður Garðar jarðfræðingur jarðfræðikortlagningu og gerð jarðfræðikorta.
ÍSOR á Vísindavöku (25.09.2009)
Jarðfræðikort af Hengli.
ÍSOR verður með sýningarbás á Vísindavöku föstudagskvöldið 24. september, kl. 17-22 í Listasafni Reykjavíkur. Þar verður hægt að fræðast um jarðfræðikortlagningu og gerð jarðfræðikorta.
Sjóöflun fyrir fiskeldi (24.08.2009)
Loftmynd af fiskeldisstöð Stofnfisks að Kalmanstjörn.
Starfsmenn ÍSOR koma víða við sögu þegar velja þarf staði fyrir borholur, hvort sem ætlunin er að vinna úr þeim kalt eða heitt vatn eða volgan jarðsjó. Í sumar var boruð ný vinnsluhola við fiskeldisstöð Stofnfisks að Kalmanstjörn, rétt sunnan við Hafnir.
Aflmiklar holur við Hverahlíð. (20.08.2009)
HE_53
Hola HE-53 í Hverahlíð byrjaði blástur af krafti og hefur síðan sótt í sig veðrið jafn og þétt og skilar nú um 60 kg/s af vatn og gufu.
Bandarískir háskólanemar kynna sér borholumælingar ÍSOR (16.07.2009)
Nemendur skoða borholumælingabíl ÍSOR
Ár hvert koma fjölmargir innlendir sem erlendir hópar í heimsókn til ÍSOR. Nýverið komu tuttugu bandarískir háskólanemendur. Þau fengu meðal annars að kynnast borholumælingum. Skoðaðir voru sérútbúnir mælingabílar og hinir mismunandi borholumælar sem eru notaðir við jarðhitarannsóknir.
Ráðgjafar ÍSOR við störf í Níkaragva (02.07.2009)
Gylfi Páll og Magnús
Tveir starfsmenn ÍSOR eru nýkomnir frá Managua, höfuðborg Níkaragva. Erindið var að ræða nýútkomna skýrslu Enel Geonica um yfirborðsrannsóknir á Managua-Chiltepe jarðhitasvæðinu.
Jarðhiti og endurnýjanlegar orkulindir (11.06.2009)
Frá Ölkelduhálsi.
Í aðsendri grein til Morgunblaðsins halda þeir Ólafur G. Flóvenz forstjóri og Guðni Axelsson jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR áfram að fjalla um endurnýjanlegar orkulindir og notkun á hugtökunum endurnýjanleiki og sjálfbærni.
Málþing um rannsóknir í jarðhita (11.06.2009)
Merki GEORGS
Í tengslum við formlega stofnun alþjóðlegs rannsóknaklasa í jarðhita, GEORG, er efnt til opins málþings um jarðhitarannsóknir og nýtingu jarðhita. Málþingið er haldið í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur, fimmtudaginn 18. júní. Það mun fara fram á ensku og er öllum opið.
Ný ESB-tilskipun um endurnýjanlegar orkulindir (09.06.2009)
Frá Hveravöllum. Ljósm. Magnús Ólafsson.
Jarðhiti er skilgreindur alþjóðlega sem endurnýjanleg orkulind.
Þann 23. apríl 2009 var samþykkt ný tilskipun Evrópusambandsins um endurnýjanlegar orkulindir (DIRECTIVE 2009/28/EC) og hún birt og gefin út í „stjórnartíðindum“ bandalagsins 5. júní 2009 (Official Journal of the European Union).
Afkastageta og ending jarðhitakerfa (12.05.2009)
Frá Kerlingarfjöllum
Umfjöllun um nýtingu jarðhitans hefur aukist mjög á opinberum vettvangi. Í grein í Morgunblaðinu í dag, eftir þá Ólaf G. Flóvenz forstjóra og Guðna Axelsson jarðeðlisfræðing hjá ÍSOR, er reynt að útskýra í stuttu máli þá þætti sem stýra afkastagetu jarðhitakerfa og endingu þeirra.
Greinargerð um landgrunn Íslands (30.04.2009)
Greinargerð um landgrunnið
Þann 29. apríl var afhent í New York til Sameinuðu þjóðanna greinargerð Íslands um landgrunn utan 200 M. Undirbúningur greinargerðarinnar hófst árið 2000, en tæknileg úrvinnsla hefur verið í höndum ÍSOR.
Orkulindir Íslands og framtíðin (08.04.2009)
Háhitasvæði
"Íslendingar eiga verðmætar orkulindir sem geta skapað störf og við getum lagt okkar af mörkum til hnattrænna umhverfismála. Spurningin er bara hvort við viljum."
Þetta og fleira kemur fram í grein Ólafs G. Flóvenz sem birt var i Morgunblaðinu 6. apríl sl.
Ársfundur ÍSOR 2009 (02.04.2009)
Svanfríður í ræðustól 2009
Sjötti ársfundur ÍSOR var haldinn í Salnum í Kópavogi föstudaginn 27. mars s.l. Fundarstjóri var Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri og fulltrúi í stjórn ÍSOR.
Ársfundur ÍSOR 2009 (26.03.2009)
Hveraauga í Kerlingarfjöllum
Ársfundur ÍSOR verður haldinn í Salnum í Kópavogi, föstudaginn 27. mars nk. Meginþema fundarins verður jarðfræði og auðlindir vestara gosbeltisins.
Djúpborun í Kröflu (26.03.2009)
Sigurveig Árnadóttir og Sverrir Þórhallsson.
Miðvikudaginn 25. mars hófst nýr áfangi í borun fyrstu holunnar, IDDP-1 í Kröflu, í djúpborunarverkefninu á Íslandi (Iceland Deep Drilling Project). Jarðborinn Týr hóf þá borun á
800 m dýpi, en fyrstu tvo áfanga holunnar boruðu Saga og Jötunn á síðastliðnu ári.
Forseti Íslands í heimsókn (05.03.2009)
Forseti Íslands
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Orkugarð miðvikudaginn 4. mars. Forsetinn átti fund með orkumálastjóra og forstjóra ÍSOR. Síðar var opinn fundur með starfsfólki þar sem framtíðarhorfur í orkumálum voru ræddar.
Nýr starfsmaður, Ari Ingimundarson (17.02.2009)
Ari
Nýr starfsmaður, Ari Ingimundarson vélaverkfræðingur, hefur verið ráðinn til starfa á verkfræðideild ÍSOR. Ari lauk prófi í vélaverkfræði frá HÍ árið 1997, meistaraprófi frá Háskólanum í Lundi árið 2000 og doktorsprófi frá sama skóla árið 2003.
Stór styrkur fékkst til jarðhitarannsókna (12.02.2009)
Gasmæling á Reykjanesi.
Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað styrkjum úr nýrri markáætlun Vísinda- og tækniráðs. Veittir voru þrír styrkir. Umsóknin, Alþjóðlegur rannsóknaklasi í jarðhita, hlaut hæsta styrkinn, allt að 70 milljónir króna á ári í 7 ár.
Námskeið í borholujarðfræði á vegum ÍSOR í Níkaragva (29.01.2009)
Þátttakandi á námskeiði í borholujarðfræði á vegum ÍSOR í Níkaragva.
Þrír starfsmenn Íslenskra orkurannsókna eru nú í Níkaragva. Meðal verkefna þeirra er kennsla á vikulöngu námskeiði í borholujarðfræði. Þar er farið yfir ýmis atriði varðandi athuganir og mælingar sem gerðar eru meðan á borun stendur.
Ársfundur ÍSOR 2009 (26.01.2009)
Frá ársfundi ÍSOR á Akureyri 2008
Ársfundur Íslenskra orkurannsókna verður haldinn í Salnum í Kópavogi, föstudaginn 27. mars nk. Meginþema fundarins verður jarðfræði og auðlindir vestara gosbeltisins. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Sumarstörf hjá ÍSOR 2009 (21.01.2009)
Sumarfólk ÍSOR við Öskju
ÍSOR hefur um áratugaskeið ráðið til sín nokkurn hóp háskólanema til ýmissa starfa. Undanfarin ár hafa 15-20 nemar verið í sumarstörfum í tvo til þrjá mánuði hver.
Landgrunnsvefsjá komin í loftið (14.01.2009)
Landgrunnsvefsjá
Orkustofnun hefur opnað Landgrunnsvefsjá, sem ætlað er að gefa yfirlit yfir gögn sem tengjast Drekasvæðinu og gera upplýsingar um þau aðgengilegar. Opnun vefsjárinnar tengist 1. útboði vegna rannsóknaleyfa á kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu.
Freysteinn Sigurðsson (4. júni 1941 - 29. des. 2008) (05.01.2009)
Freysteinn Sigurðsson
Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur á Orkustofnun, lést 29. desember síðastliðinn eftir stranga baráttu við krabbamein 67 ára að aldri. Starfsmenn ÍSOR þakka Freysteini eftirminnilegar og gefandi samvinnu- og samverustundir og senda fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.
ÍSOR á haustfundi AGU í San Fransisco (12.12.2008)
Merki jarðvísindaráðstefnunnar AGU
AGU (American Geophysical Union) stendur árlega fyrir stórri ráðstefnu eða „haustfundi“ í San Fransisco. Þar er fjallað um öll viðfangsefni jarðvísindanna. Þessi ráðstefna stendur í fimm daga og er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.
Misskilningur um olíuauðlindir á Drekasvæði (28.11.2008)
Dreki_litil
Að gefnu tilefni verður að leiðrétta misskilning sem hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og varðar hugsanlegan olíuauð og olíuvinnslu á Drekasvæðinu milli Íslands og Jan Mayen.
Ráðstefna og námskeið um jarðhitamál Austur-Afríku (21.11.2008)
Þátttakendur og fyrirlesarar í Úganda.
Námskeið um rannsóknir og nýtingu jarðhitasvæða “Geothermal Project Management and Development” fer nú fram í Úganda. Námskeiðið er ætlað millistjórnendum og koma þátttakendur frá 10 löndum Austur-Afríku auk tveggja Evrópulanda.
Námskeið í jarðhitafræðum í Afríku (18.11.2008)
Þátttakendur ásamt leiðbeinendum á námskeiðinu.
Námskeiði á vegum Jarðhitaskólans og KenGen í Kenýa „Short Course III on Surface Exploration for Geothermal Resources“ er nýlokið og tókst í alla staði mjög vel. Námskeiðið var tileinkað yfirborðsrannsóknum á jarðhitakerfum.
Mjög góður árangur af borun á Klúku í Bjarnarfirði í Strandasýslu (05.11.2008)
Hitaveitu- og borstjóri virða fyrir sér heita vatns bununa.
Borun við Klúku í Bjarnarfirði syðra í Strandasýslu er nú lokið og var árangur mjög góður. Holan er um 330 metra djúp og gefur um 16 l/sek af tæplega 50°C heitu vatni í fríu rennsli en um 25 l/sek með 10 metra niðurdrætti.
Hitamet í borholu slegið (04.11.2008)
Borhola í blæstri
ÍSOR annast borholumælingar Landsvirkjunar í Kröflu. Þegar jarðborinn Jötunn var að bora holu nr. KJ-39 vöknuðu fljótlega grunsemdir um mjög háan hita neðan við 2800 m.
Góður árangur við borun á Krossnesi á Ströndum (27.10.2008)
Jarðborinn Klaki á borstað á Krossnesi. Ljósm. Jón Guðbjörn Guðjónsson í Litlu-Árvík.
Borun eftir heitu vatni á Krossnesi í Árneshreppi er nú lokið og var árangur mjög góður. Holan er um 90 metra djúp og gefur um 15 l/sek af um 65°C heitu vatni. Að boruninni standa Árneshreppur, með tilstyrk Orkusjóðs, og bændur á Krossnesi. Nægt vatnsmagn fékkst og er nú hægt að leggja hitaveitu inn í Norðurfjörð.
Landslagsfyrirbærum á hafsbotni gefið nafn (20.10.2008)
Drekasvæðið
ÍSOR hefur undanfarin ár unnið að jarðfræði- og jarðeðlisfræðilegum mælingum vegna undirbúningsvinnu fyrir olíuleit á Drekasvæðinu við Jan Mayen hrygg. Eins og kom fram í Fréttablaðinu sl. mánudag hefur Haukur Jóhannesson jarðfræðingur komið með tillögur að nöfnum á náttúrufyrirbærin á hafsbotninum.
Náttúruvefsjá komin í loftið (17.10.2008)
www.natturuvefsja.is
Þann 15. október 2008 var opnuð veflausn sem birtir fjölbreytt gögn um náttúrufar og auðlindir Íslands á vefslóðinni www.natturuvefsja.is. Náttúruvefsjáin er afrakstur þróunarsamstarfs sem á uppruna sinn í verkefni sem hlaut styrk frá Rannís árið 1999
ÍSOR tekur í notkun nýjan mælibúnað og bíl til eftirlitsmælinga í háhitaholum (01.10.2008)
Sérútbúinn mæligámur
Með þessum nýja mælibúnaði rekur ÍSOR nú þrjá sérútbúna bíla til hita- og þrýstimælinga í háhitaholum.
Helstu nýjungar eru þær að sérstakur mæligámur var útbúinn með glussaspili og tveimur tromlum fyrir mælivír.
Vísindavaka RANNÍS (26.09.2008)
Vísindavaka RANNÍS
ÍSOR tekur þátt í Vísindavöku RANNÍS í Listasafni Reykjavíkur kl. 17-22. Ætlunin er að skyggnast inn í huliðsheima jarðhitans. Við sýnum hitamyndavél sem nemur varmaútgeislun sem innrauðar bylgjur og gefur þannig upplýsingar um hitastig. Einnig verður fólki gefin kostur á að skoða ummyndunarsteindir í víðsjá.
Borun í Hveravík í Steingrímsfirði gekk vel (19.09.2008)
Hveravík við  Steingrímsfjörð
Góður árangur náðist við borun á holu til að ná upp heitu vatni fyrir Hveraorku ehf. Borað var í Hveravík við norðanverðan Steingrímsfjörð, víkin hét fyrrum Reykjarvík. Í fjörunni austan víkurinnar eru hverir og hæstur hiti hefur mælst 76°C. Sjór fellur yfir hverina.
Afmælisráðstefna Jarðhitaskólans (26.08.2008)
Nemendur Jarðhitaskólans ásamt leiðbeinanda
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna fagnar þrjátíu ára afmæli sínu með ráðstefnu á Grand Hóteli Reykjavík 26.-27. ágúst og hefst dagskrá kl. 9:00 báða dagana. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um jarðhita og þróunaraðstoð.
Fundur í Evrópuverkefninu HITI (22.08.2008)
Fulltrúar frá samstafsaðilum
Fundur í Evrópuverkefninu HITI (HIgh Temperature Instruments for supercritical geothermal reservoir characterization and exploitation) var haldinn dagana 21.-22. ágúst í Mývatnssveit. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem nú er hálfnað.
Góður árangur af borun á Kópsvatni í Hrunamannahreppi (14.08.2008)
Jarðborinn Saga í mynni Borgardals á Kópsvatni
Saga, bor Jarðborana, hefir lokið við borun 1500 m djúprar holu í mynni Borgardals á Kópsvatni. Holan er boruð fyrir Hitaveitu Flúða. Borunin gekk mjög vel og árangur er afskaplega góður. Við fyrstu prófanir á holunni fengust um og yfir 70 l/sek af 110°C heitu vatni. Holan er með bestu lághitaholum sem boraðar hafa verið.
Ungverjar sækja jarðhitaþekkingu til Íslands (01.08.2008)
Fulltrúar Debrecen skoða gróðurhús
Fulltrúar háskólans í Debrecen í Ungverjalandi sóttu ÍSOR heim og fræddust um jarðhitaleit. Von er á örðum hópi innan tíðar.
Heimsókn ráðherra raforkumála og endurnýjanlegrar orku í Ekvador (10.07.2008)
Ráðherraheimsókn frá Ekvador
Alecksey Mosquera Rodriguez, ráðherra raforkumála og endurnýjanlegrar orku í Ekvador er í heimsókn á Íslandi dagana 7.-10. júlí í boði iðnaðarráðherra og heimsótti m.a. Orkugarð síðastliðinn mánudag.
Kynningarbæklingur um ÍSOR á ensku (23.06.2008)
Iceland GeoSurvey_bæklingur
Gefinn hefur verið út kynningarbæklingur um ÍSOR. Fyrst um sinn verður bæklingurinn til á ensku en stefnt er að því að gefa hann einnig út á íslensku. Hægt er að nálgast pdf útgáfu hér eða nálgast prentað eintak á skrifstofu ÍSOR.
Sprungur í Reykjafjalli austan Hveragerðis (06.06.2008)
Sprungur í  Reykjafjalli
Í jarðskjálftunum undanfarna daga mynduðust sprungur nálægt fjallsbrúnum Reykjafjalls austan Hveragerðis. Að ósk Hveragerðisbæjar fóru þeir Kristján Sæmundsson og Jónas Guðnason jarðfræðingar hjá ÍSOR í könnunarferð 3. júní til að skoða sprungurnar og meta hvort af þeim stafi einhver hætta.
Óbeinar jarðskjálftamælingar (03.06.2008)
Óbeinar jarðskjálftamælingar
Frá því Suðurlandsskjálftinn reið yfir þann 29. maí hafa starfsmenn ÍSOR verið að rannsaka áhrif jarðskjálftans á borholur, jarðhitakerfi og grunnvatnsstöðu. Slíkar athuganir gáfu miklar upplýsingar um eðli jarðskjálftanna árið 2000.
Sérfræðingar frá ÍSOR við kennslu í Kína (28.05.2008)
Námskeið í Kína
Þeir Guðni Axelsson eðlisfræðingur og Sverrir Þórhallsson verkfræðingur voru meðal fyrirlesara á fyrsta námskeiðinu í jarðhitafræðum sem Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir í Kína.
Heimsókn orku- og iðnaðarráðherra Tyrklands (08.05.2008)
Kalkútfellingar í Pamukkale í Tyrklandi
Orku- og auðlindaráðherra Tyrklands, Mehmet Hilmi Güler er hér á landi í boði í Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Í föruneyti hans eru m.a. Orthan Mertoglu, forseti Jarðhitasambands Tyrklands, og Mustafa Hatipoglu, forseti Miðstöðvar vetnisrannsókna Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi.
Aukið samstarf við Háskóla Íslands (30.04.2008)
Halldór Ármannsson
Háskóli Íslands og ÍSOR hafa undirritað samning um að dr. Halldór Ármannsson hjá ÍSOR gegni starfi gestaprófessors við verkfræði- og raunvísindadeildir HÍ.
Elsa G. Vilmundardóttir jarðfræðingur er látin (29.04.2008)
Elsa G. Vilmundardóttir
Elsa G. Vilmundardóttir jarðfræðingur, og fyrrum starfsmaður Rannsóknasviðs Orkustofnunar, forvera ÍSOR, lést að kvöldi síðasta vetrardags 23. apríl s.l. 75 ára að aldri.
Tökur á heimildamynd um jarðhita (16.04.2008)
Tökur fyrir heimildarmynd.
ÍSOR styrkir gerð heimildamyndar sem er um sögu og nýtingu jarðhita á Íslandi. Kvikmyndafyrirtækið Plús film framleiðir myndina og stefnt er að sýna hana í Ríkissjónvarpinu á þessu ári. Tekin voru upp atriði í myndina hjá ÍSOR í byrjun vikunnar.
Jarðhitarannsóknir í Djibouti lofa góðu (15.04.2008)
Hér er verið að ganga frá viðnámsmælitækjum.
Jarðhitarannsóknir í Djibouti í Austur-Afríku benda til að góðar vonir séu til þess að finna megi nýtanlegan jarðhita til raforkuframleiðslu.
Ársfundur ÍSOR 2008 (31.03.2008)
Frá ársfundi ÍSOR á Akureyri
Umhverfismál og háhitavirkjanir frá ýmsum sjónarhornum voru þema fimmta ársfundar ÍSOR sem haldinn var á Akureyri, 28. mars. Um 120 manns sóttu fundinn sem hófst á því að Ólafur G. Flóvenz forstjóri fór yfir liðið ár og gerði grein fyrir afkomu ÍSOR.
Umbrotin við Upptyppinga (19.03.2008)
Skjálftar við Upptyppinga
Starfsmenn ÍSOR mældu eðlisviðnám jarðskorpunnar við Upptyppinga í ágúst 2007. Úrvinnsla mælinganna hefur staðið yfir undanfarna mánuði og er nú lokið.
Vorfundur Jarðhitafélags Íslands (29.02.2008)
Frá Laugarási
Vorfundur Jarðhitafélags Íslands, var haldinn í Orkugarði, 29. febrúar síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var Vannýtt tækifæri í lághitanýtingu. Erindin sem flutt voru á þinginu verða gefin út síðar.
Jarðhitarannsókn á Kanaríeyjum (26.02.2008)
Jarðfræðingur frá ITER
Nýverið hóf ÍSOR samstarf við Orkustofu Kanaríeyja, ITER (Instituto Tecnológico y de Energías Renovables), um rannsóknir á jarðhitanýtingu á eyjunum.
Borkjarnaskanni í útibú ÍSOR á Akureyri (12.02.2008)
Borkjarnaskanni
Borkjarnaskanni sem er eina tækið sinnar tegundar á Íslandi var nýlega prufukeyrður á útibúi ÍSOR á Akureyri. Borkjarnaskanninn og smartCIS-kerfið (Camera Image Scanner) voru keypt fyrir djúpborunarverkefnið (IDDP) af ÍSOR, Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins (nú Nýsköpunarmistöð Íslands) og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sumarstörf á ÍSOR 2008 (31.01.2008)
Við mælingar í Vonarskarði. Ljósm. Hjálmar Eysteinsson
ÍSOR mun ráða til sín nemendur á háskólastigi til ýmissa starfa í sumar, t.d. á sviði jarðeðlisfræði, forðafræði, jarðfræði, jarðefnafræði og verkfræði. Leitað er eftir sumarfólki við aðalstöðvar í Reykjavík og við útibú ÍSOR á Akureyri.
ÍSOR annast jarðvarmaverkefni í Níkaragva (28.01.2008)
Orkumálaráðherra Níkaragva. Ljósm. Gunnar Salvarsson
Emilio Rappaccioli orkumálaráðherra Níkaragva skrifar í dag undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofnun Íslands um fimm ára þróunarverkefni á sviði jarðhitamála. Sérfræðingar ÍSOR munu að mestu leyti annast jarðvarmaverkefnið fyrir hönd Þróunarsamvinnustofnunar.
Rannsóknir á gangaleið Sundabrautar (24.01.2008)
Einfaldað jarðfræðikort
Borgarráð samþykkti á dögunum að Sundabraut verði lögð í göngum frá Laugarnesi í Gufunes, með eðlilegum fyrirvara um niðurstöður umhverfismats. Á liðnu sumri unnu sérfræðingar ÍSOR að skipulögðum jarðfræðirannsóknum á þessari gangaleið. Niðurstöðurnar voru þær að aðstæður til jarðgangagerðar teljast sæmilegar.
Sívaxandi umsvif ÍSOR (14.01.2008)
Fundur með nýjum starfsmönnum í Skíðaskálanum
Undanfarin ár hefur starfsmönnum ÍSOR farið stöðugt fjölgandi. Frá því ÍSOR var stofnað sumarið 2003 við aðskilnað Rannsóknarsviðs Orkustofnunar frá Orkustofnun hefur fjöldi starfsmanna nær tvöfaldast. Þeir eru nú liðlega 80.
Opnað fyrir holu KJ-36 í Kröflu (13.12.2007)
Hola KJ-36.jpg
Gífurlegur hávaði braust út þegar holan KJ-36 í Kröflu var hleypt upp í gær. Um klukkan 11:15 í gærmorgun var skrúfað frá holunni eftir að gufan hafði verið látin smá leka (blæða) í örlítinn tíma til að hita toppinn. Toppþrýstingurinn við þessar aðstæður var um 125 bar. Hún kom kröftuglega upp með tiltölulega hreinni gufu, í það minnsta var hún hvít að sjá.
Aukið samstarf við Háskóla Íslands (12.12.2007)
HI_logo.png
Háskóli Íslands og Íslenskar orkurannsóknir hafa undirritað samning um að dr. Ólafur G. Flóvenz forstjóri ÍSOR og dr. Guðni Axelsson deildarstjóri hjá ÍSOR gegni starfi gestaprófessors við verkfræði- og raunvísindadeildir HÍ. Markmið samningsins er að styrkja kennslu og rannsóknir í jarðhitafræðum.
Upphleyping borholna á Þeistareykjum (03.12.2007)
Upphleyping borholna á Þeistareykjum
Nokkuð sérstæður atburður átti sér stað á Þeistareykjum fimmtudaginn 29. nóvember. Þá var hleypt upp þremur holum á sama borteig á einni klukkustund. Borteigurinn er á Þeistareykja-grundum við hlíðarfót Bæjarfjalls að norðanverðu, kenndur við ÞG-01, þar sem fyrsta djúpa rannsóknarholan á svæðinu var boruð.
Sérfræðingar ÍSOR leiðbeinendur á námskeiði í El Salvador (28.11.2007)
El Salvador
Þessa vikuna stendur yfir námskeið í Mið-Ameríku um Jarðhitamat og umhverfisstjórnun á jarðhitasvæðum, ”Short Course on Geothermal Development in Central America - Resource Assessment and Environmental Management”.
Námskeið í Kenýa (23.11.2007)
Fyrsta koltvísýringsvarmadælan á Íslandi (11.11.2007)
Koltvísýringsvarmadæla
Fyrsta koltvísýringsvarmadælan hér á landi var sett upp á bænum Grýtubakka 1 við austanverðan Eyjafjörð (Eco Cute frá Sanyo). ÍSOR sá um ráðgjöf og innkaup en Jónas Baldursson, landeigandi og húsasmiður, um uppsetningu varmadælunnar á heimili sínu.
Tveir íslendingar í stjórn Alþjóðajarðhitasambandsins (01.11.2007)
Rangfærsla í fréttum Ríkissjónvarpsins (15.10.2007)
Haustþing Jarðhitafélags Íslands (05.10.2007)
Stefnumót við vísindamenn (25.09.2007)
Nýr samningur um djúpboranir undirritaður (11.09.2007)
Rannsóknaboranir á norðausturlandi (07.09.2007)
Frá því apríl í ár hafa verið boraðar 3 rannsóknarborholur með jarðbornum Jötni. Tvær holur í Kröflu, í Sandabotnum og vestan Rauðhóls. Hola KS-01 (58801) í Sandabotnum varð 2502 m löng og var stefnuboruð til austurs. Í lok borunar eftir örvunaraðgerðir tók holan við 57 L/s. Hola KJ-35 (58035) vestan Rauðhóls var forboruð 1982, en fallið var frá borun á þeim tíma. Í ár var holan stefnuboruð í áttina að Mývatnseldagígum og endaði í sprungustykkinu sunnan Leirhnjúks. Tæplega 1300 m vinnslufóðring var sett í hana til að fóðra af efra kerfið, sem er 190-210°C heitt. Holan varð 2507 m löng og töpuðust yfir 70 L/s þegar borun lauk.
Nýlokið er viðnámsmælingum í Vonarskarði. (29.08.2007)
Halldór Ármannsson kosinn formaður framkvæmdanefndar Water Rock alþjóðaþingsins. (21.08.2007)
Jarðeðlisfræðimælingar í Krýsuvík (08.08.2007)
Alexander Karsner heimsækir Orkugarð (30.07.2007)
ENGINE vettvangsferð (05.07.2007)
ENGINE fundur í Reykjavík 2. - 5. júli. (29.06.2007)
Borun lokið í Öndverðarnesi. (26.06.2007)
Kristján Sæmundsson sæmdur riddarakrossi (18.06.2007)
Kristján Sæmundsson sæmdur riddarakrossi
Djúpsýnataka úr borholum á Reykjanesi (15.06.2007)
Rannsóknir á jarðgangaleið Sundabrautar (15.06.2007)
Íslensk orka (24.05.2007)
Aðild ÍSOR að orkuskólum á Íslandi (24.05.2007)
Olíuleit innan seilingar? (02.05.2007)
Ný vinnsluhola við Grafarlaug fyrir Rarik og hitaveitu í Dalabyggð (27.04.2007)
ÍSOR ráðgjafi í verkefnum IAE (25.04.2007)
Merkur áfangi hjá Hitaveitu Dalvíkur (10.04.2007)
Ársfundur ÍSOR 2007 (02.04.2007)
Fjórði ársfundur ÍSOR (27.03.2007)
Nýjar upplýsingar úr gömlum sprungum (13.03.2007)
Jarðhitaleit fyrir Súðavík (21.02.2007)
Síðsumars og haustið 2006 voru kannaðir möguleikar á að ná heitu vatni fyrir Súðavík. Verkið var unnið að frumkvæði hreppsnefndar Súðavíkur í samvinnu við Orkubú Vestfjarða og með stuðningi Orkusjóðs. Íslenskar orkurannsóknir sáu um yfirborðsrannsóknir og höfðu eftirlit með leitarborunum. Verkið fólst í jarðfræðikortlagninu og könnun á sprungum og misgengjum auk hitastigulsborana.
Halla- og stefnumælingar í borholum (29.01.2007)
Vatnsveita Í Borgarbyggð (08.01.2007)
Starfsmaður ÍSOR hlýtur heiðursverðlaun Ásusjóðs (29.12.2006)
Steinar Þór Guðlaugsson
Borun á Tjörn í Biskupstungum. (22.12.2006)
Samstarfssamningur ÍSOR og Háskóla Íslands (19.12.2006)
Borað að Reykjum við Reykjabraut fyrir Rarik (13.12.2006)
Guðmundur Böðvarsson látinn (01.12.2006)
Guðmundur Böðvarsson
Kjarnaborun í Kröflu (29.11.2006)
Námskeið í Afríku og Mið-Ameríku (23.11.2006)
Halldór Ármannsson kjörinn formaður WRI (07.11.2006)
Halldór Ármannsson
Forseti Íslands heimsækir Orkustofnun og Íslenskar orkurannsóknir (03.11.2006)
Vatnamælingar flytjast til ÍSOR (26.10.2006)
Kristján Sæmundsson kjörinn heiðursdoktor (20.10.2006)
Kristján Sæmundsson
Háhitarannsóknir og rannsóknaboranir (18.10.2006)
Hverasvæði eru síbreytileg (05.10.2006)
Ný jarðhitahola í Hrolleifsdal í Skagafirði dæluprófuð (03.10.2006)
Kínversk sendinefnd í heimsókn í Orkugarði (26.09.2006)
Samkomulag um landgrunnsréttindi í Síldarsmugunni (21.09.2006)
Jarðskjálftar við Reykjarfjörð á Ströndum (20.09.2006)
Fornís í Öskju (19.09.2006)
I-GET vinnufundur á ÍSOR (08.09.2006)
26. notendaráðstefna ESRI (28.08.2006)
Íslendingarnir á ráðstefnunni
Halla- og stefnumælingar í borholum (22.08.2006)
Boranir á Skarðsmýrarfjalli. (02.08.2006)
Nýr bor Jarðborana á Skarðsmýrarfjalli
Rannsóknir Íslenskra orkurannsókna á koltvísýringsbúskap jarðhitasvæða (25.07.2006)
Valgarður Stefánsson látinn (11.07.2006)
Valgarður Stefánsson
Góður árangur af borun við Stykkishólm (11.07.2006)
ÍSOR tekur þátt í Global Roundtable on Climate Change (GROCC) (14.06.2006)
Ný tækni við borun í Trölladyngju (07.06.2006)
Góð hitastigulshola á Eyvindarárdal (24.05.2006)
Þórólfur Hafstað leitar vatns - með góðum árangri.
Borun á Árskógsströnd skilar árangri! (10.05.2006)
steini_HDal_Ars32
Forstjóri ÍSOR á fundum í New York (05.05.2006)
Jarðhitaháskólinn settur (03.05.2006)
Nýr fjölnotabíll í flota ÍSOR (27.04.2006)
Þorsteinn Thorsteinsson látinn (19.04.2006)
Deildarstjóraskipti á Jarðfræðideild ÍSOR (31.03.2006)
Vel heppnaður ársfundur ÍSOR á Egilsstöðum (27.03.2006)
Jarðboranir og jarðhiti á Íslandi á forsíðu BBC (27.03.2006)
Arnarnesstrýtur í tímaritinu Nature (14.03.2006)
Góður árangur af borun í Kelduhverfi (11.03.2006)
Góður árangur er kominn af borun í Kelduhverfi. Holan er á eyðinu milli Bakkahlaups og Skálftavatns, og endaði hún í 610 m dýpi, og lýkur borverkinu nú um helgina. Orkuveita Húsavíkur og Kelduneshreppur standa að boruninni. Upp úr holunni streyma í sjálfrennsli um 17 l/s af 75°C heitu vatni
Hreinsun holu RN-17 á Reykjanesi mistókst (01.03.2006)
ÍSOR í Mið-Ameríku á Þorranum (22.02.2006)
Góður árangur í borun í Grábrókarhrauni (14.02.2006)
Sérfræðingar ÍSOR enn að störfum í Úganda (08.02.2006)
Ársfundur ÍSOR verður á Egilsstöðum (31.01.2006)
Þegar ÍSOR varð til var samþykkt að reyna að halda ársfundi utan suðvesturhornsins annað hvert ár.

Megináhersla verður á málefni tengd Austurlandi eins og meðfylgjandi dagskrá ber með sér.

ÍSOR kaupir nýjan borholumælingabíl (18.01.2006)
ÍSOR aðili að 3 nýjum samevrópskum rannsóknaverkefnum (13.01.2006)
ÍSOR á haustráðstefnu AGU, San Francisco, dagana 5-10 desember 2005. (14.12.2005)
Áhættufjárfestar í Bretlandi fjármagna leit að gulli (09.12.2005)
Gull
Jarðhitabókin tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna (02.12.2005)
Guðmundur Pálmason
Upphleyping í Bjarnarflagi (01.12.2005)
Upphleyping holu B-11 í Bjarnarflagii
Fréttir af borun RH-02 á Reykjum í Hjaltadal (15.11.2005)
Íslendingar standa fyrir málþingi í Kenía (09.11.2005)
Kenía
Dagana 13-18. nóvember 2005 verður haldið í Kenya málþing fyrir stjórnendur jarðhitaverkefna í Austur Afríku. Það er Jarðhitaskólinn og Landsvirkjun Kenya (KenGen) sem standa fyrir málþinginu í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands,UNEP (United Nation Environmental Programme) og svo kallað Argeo-samstarf (African Rift Geothermal Facility).
Jón Jónsson jarðfræðingur látinn (01.11.2005)
Jón Jónsson
Jón Jónsson jarðfræðingur lést þann 29. okt. s.l. 95 ára að aldri.

Jón lærði jarðfræði í Svíþjóð og tók fil. lic. gráðu við Stokkhólms-háskóla 1958. Lokaritgerð hans var um sjávarstöðubreytingar á Íslandi og kísilþörunga í sjávarseti.
Jón réðst til jarðhitadeildar Raforkumálastjóra sama ár og hann lauk námi. Verkefni hans voru framan af einkum á sviði neysluvatns- og heitavatnsöflunar víða um land. Hann aflaði sér víðtækrar þekkingar og reynslu á hvoru tveggja. Var mjög til hans leitað þar sem voru hinar stærri vatnsveitur sem margar hverjar bjuggu við bágt ástand á þeim árum.
Dæluprófun að Reykjum í Fnjóskadal (26.10.2005)
Rangar upplýsingar um rannsóknaniðurstöður vegna Vestmannaeyjaganga (17.10.2005)
Vinnslueftirlitsferð í október 2005 (14.10.2005)
Heitt vatn finnst nærri Hofsósi (10.10.2005)
Undanfarin ár hefur staðið yfir jarðhitaleit á vegum Skagafjarðarveitna í Hrolleifsdal. Markmiðið var að finna heitt vatn fyrir Hofsós og nærliggjandi byggðir. Hofsós er eitt þeirra þorpa sem enn hafa ekki fengið hitaveitu. Íslenskar orkurannsóknir hafa annast rannsóknir vegna leitarinnar undir stjórn Kristjáns Sæmundssonar, jarðfræðings. Niðurstöður þeirra leiddu til borunar djúprar rannsóknarholu við Bræðrá, utan til í dalnum.

Fjármögnun fyrstu djúpborunarholunnar tryggð (22.09.2005)
Íslenska ríkið og orkufyrirtækin þrjú hafa nú samþykkt fjármögnun djúpborunarverkefnisins. Þetta ásamt framlögum erlendis frá tryggir framgang verksins.
Umfangsmestu orkurannsóknir á Norðurlandi (19.09.2005)
teistareykir
Landsvirkjun hefur eignast tæplega 32% hlut í Þeistareykjum ehf. með kaupum á nýju hlutafé í félaginu en skrifað var undir kaupin á hluthafafundi sem haldinn var á Breiðumýri í Reykjadal 9. september síðastliðinn. Um er að ræða hlutafjáraukningu upp á rúmar 110 milljónir króna, sem Landsvirkjun greiðir um 260 milljónir króna fyrir.
Samvinna JPL, Sævarar, HA og ÍSOR um prófun rannsóknartækis! (08.09.2005)
Alberto Behar við prófanir á sýntökubúnaði JPL
Sýnatökubúnaður NASA prófaður við hverastrýturnar útaf Arnarnesi í samvinnu við köfunarfyrirtækið Sævör, ÍSOR á Akureyri og Auðlindadeild Háskólans á Akureyri.
Framfarir í orkumálum (31.08.2005)
Djúpborun
Ríkisstjórnin tók þá stóru ákvörðun í gær að taka þátt í djúpborunarverkefninu (IDDP) með beinum hætti og fjármagna verkefnið til jafns við orkufyrirtækin á næstu árum. Með því stuðlar ríkisvaldið að því að hinn raunverulegi orkuforði landsins sé endurmetinn. Hér er um stórt framfaraskref að ræða sem ÍSOR fagnar mjög, og skýra stefnu í orkumálum þjóðarinnar.
Starfsmenn ÍSOR í Úganda (30.08.2005)
Starfsmenn ÍSOR og Orkuveitu Reykjavíkur annast jarðfræðikortlagningu og jarðeðlisfræðilegar mælingar í Úganda
Ævagamall ís í Öskju (26.08.2005)
Jarðfræðingar ÍSOR og Jarðvísindastofnunar Háskólans hafa fundið 130 ára gamalt hjarn og 11300 ára gamlan ís í Öskju.
JARÐHITALEIT Á GRÆNLANDI (25.08.2005)
Góðhöfn
ÍSOR hefur tekið að sér jarðhitaathuganir á Diskóeyju við Grænland. Aðalbyggðin þar er í Góðhöfn eða Qeqertarsuak sem er 1100 manna bær og vinabær Húsavíkur. Á Diskó er lághiti í jörðu en hann er lítt rannsakaður og ekkert nýttur en nú hugsa menn sér til hreyfings.

Vísindastörf á Hengilssvæði (24.08.2005)
Rússar í Hengli
Um þessar mundir er flokkur rússneskra vísindamanna frá háskólanum í Moskvu við mælingar á Hengilssvæði. Mælingarnar, svonefndar MT-mælingar ( magneto-telluric), miða að því að sjá viðnám í jörðu, allt niður á 15-20 kílómetra dýpi.
Ný vinnsluhola Hitaveitu Rangæinga (10.08.2005)
Ný hola í Kaldárholti
Í júlíbyrjun lauk borun holu KH-37 á jarðhitasvæðinu í Kaldárholti sem er annað tveggja jarðhitasvæða sem Hitaveita Rangæinga nýtir. Nýja holan er að flestu leyti sambærileg við fyrri vinnsluholuna á svæðinu, holu KH-36. Sú nýja er samt töluvert öflugri og er áætlað að hún geti afkastað 60 – 70 l/s af 67-69°C vatni með dælu á 80 m dýpi.
Merkilegur jarðhiti á Reykjum í Hjaltadal (04.08.2005)
haukur_1
(04.08.2005)
haukur_2
Segulmælingar í Hrollleifsdal og við Kálfsstaði (03.08.2005)
segulmælingar2
Starfsmenn ÍSOR við vinnu í Úganda í Afríku 2005 (26.07.2005)
uganda_1_240px.jpg
Á síðasta ári unnu starfsmenn ÍSOR við jarðhitaleit í Úganda á vegum Þróunarsamvinnu- stofnunar. Nú er hafið framhald á því verki og munu fimm starfsmenn ÍSOR taka þátt í þessum áfanga. Unnið verður að TEM-mælingum á tveimur svæðum Kibiro og Katwe til að ákvarða stærð jarðhitakerfanna og munu þrír jarðeðlisfræðingar frá ÍSOR hafa umsjón með mælingunum og vinna þær með heimamönnum.

Á myndinni sjást heimamenn gera sig klára í TEM-mælingar.
Góður árangur borunar eftir heitu vatni á Urriðavatni (26.07.2005)
UV-10_256px.JPG
Borun holu UV-10A á Urriðavatni fyrir Hitaveitu Egilsstaða og Fella lauk föstudaginn 22. júlí kl. 10 um morguninn og var holan þá 1394,5 m djúp. Rennsli úr holunni er áætlað rúmir 60 l/s við um 60 m niðurdrátt. Hiti vatnsins er á bilinu 75 til 80°C.

Á myndinni sést jarðborinn Sleipnir við Urriðavatn.

ÍSOR hefur verið ráðgjafi Hitaveitu Egilsstaða og Fella í þessu verki og Jarðboranir hf sáu um borunina.
Jarðeðlisfræðimælingar sumarið 2005 (13.07.2005)
Tem
Nú í sumar er mikið um að vera í jarðeðlisfræðimælingum. Farfuglarnir okkar, eins og við köllum sumarstarfsmenn okkar, taka drýgstan þátt í mæliútgerðinni, en þau eru öll háskólanemar í greinum sem nýtast til jarðvísinda.

Á myndinni eru Tem mælingamenn í basli

Fjölnýting jarðhitans í Hrísey (09.06.2005)
Viljayfirlýsing undirrituð
Þann 8. júní sl.var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf, sem miðar að því að úr jarðhitanum í Hrísey verði unnin öll orka sem þar er þörf á. Að þessu verkefni koma auk Íslenskra orkurannsókna: Akureyrarbær, Norðurorka hf., Auðlindadeild Háskólans á Akureyri, LIH Consulting AS í Danmörku, Exorka ehf. og Útrás ehf.Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var við undirritun viljayfirlýsingarinnar, eru f.v.: Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, Þórhallur Bjarnason (Útrás), Björn Gunnarsson (Auðlindadeild H.A.), Bjarni Gautason (ÍSOR) og Franz Árnason forstjóri Norðurorku.


Jarðhitabók Guðmundar Pálmasonar fær góða ritdóma (25.05.2005)
Jarðhitabókin
Jarðhitabók Guðmundar Pálmasonar er fræðslurit og jafnframt menningarsögulegt rit fyrir almenna lesendur. Ágúst H Bjarnason skrifar ritdóm og segir m.a. "Undirrituðum er til efs að völ sé á betra yfirlitsriti en þessu".
Gagnavefsjá kemst áfram í aðalkeppni Nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna (23.05.2005)
Kynning Gagnavefsjár
Eins og fram kemur í frétt hér fyrir neðan var Gagnavefsjá Orkustofnunar og ÍSOR tilnefnd í forval til nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna, World Summit Award. Nú hefur verið tilkynnt hvaða átta nýmiðlunarverkefni verða send fyrir hönd Íslands í aðalkeppni , sem fram fer í Túnis í nóvember og komst Gagnavefsjáin í þann flokk.
Gagnavefsjá Orkugarðs í forval til Nýmiðlunarverðlauna SÞ (11.05.2005)
Gagnavefsjá
Gagnavefsjá Orkugarðs veitir almenningi aðgang og upplýsingar um gögn í vörslu ÍSOR og Orkustofnunar sem varða náttúrufar og nýtingu jarðrænna orkulinda.
Miklar virkjunarframkvæmdir hjá Orkuveitu Reykjavíkur. (04.05.2005)
Orkuveita Reykjavíkur er stærsti verkkaupi ÍSOR og er útlit fyrir að svo verði áfram. Miklar framkvæmdir eru framundan og veitir ÍSOR alhliða jarðhitaráðgjöf og sinnir viðamiklum jarðhitarannsóknum á öllum stigum þeirra.

Jarðhitanotkun á Íslandi sú mesta í heimi. (26.04.2005)
Í frétt Morgunblaðsins í dag kemur fram að Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hafi ávarpað alþjóðlegu jarðhitaráðstefnuna WGC 2005. Að ávarpi loknu opnaði ráðherrann yfirgripsmikla jarðhitasýningu sem haldin er í tengslum við ráðstefnuna.

17 starfsmenn ÍSOR á WGC-2005 (20.04.2005)
WGC2005
Dagana 24. til 29. apríl verður haldin alþjóðleg jarðhitaráðstefna í Antalya í Tyrklandi og taka Íslendingar myndarlegan þátt í ráðstefnunni.

Fyrsta kjarnaborunin á Reykjanesi í tengslum við IDDP (20.04.2005)
Djúpkjarni
Nú í apríl var fyrsti borkjarninn í tengslum við djúpborunarverkefnið tekinn á Reykjanesi, á vinnslusvæði Hitaveitu Suðurnesja hf, sem kostar vinnsluholuna. Kjarnatakan sjálf var hins vegar kostuð af ICDP (International Coninental Scientific Drilling Program), og markar formlegt upphaf á alþjóðlegu samstarfi í tengslum við IDDP boranir.
ÍSOR semur um kaup á nýjum borholumælingabíl (15.04.2005)
Samningur handsalaður
Íslenskar orkurannsóknir hafa samið við Heklu um kaup á nýjum Scania P340 4x4 bíl til borholumælinga. Bíllinn verður sendur til Kanada þar sem DynaWinch setur á hann sérsmíðaðan búnað. Framundan eru miklar annir í mælingum bæði vegna mikilla borana svo og við eftirlitsmælingar vegna reksturs tveggja nýrra gufuaflsvirkjana. Á myndinni handsala Bjarni Arnarson sölumaður Heklu og Ólafur G. Flóvenz forstjóri ÍSOR, samninginn hjá Ríkiskaupum.
Heitavatnsborun á Berserkseyri (06.04.2005)
Grundfirðingar bora eftir heitu vatni á Berserkseyri.
Borun jarðhitaholu á Heimaey (01.04.2005)
Hitaveita Suðurnesja leitar að nýtanlegum jarðvarma í Vestmannaeyjum. Holan er nú í byrjun apríl um 800 metra djúp
Ársfundur ÍSOR (31.03.2005)
Ársfundargestir í Eldborg
Ársfundur ÍSOR var haldinn 18. mars síðastliðinn í Eldborg í Svartsengi. Fjallað var um jarðfræði og nýtingu auðlinda á Reykjanesskaga.
Ársfundur ÍSOR í Eldborg 18. mars - Jarðfræði og jarðhiti á Reykjanesskaga (16.03.2005)
ÍSOR lógó
Á fundinum fjallar Ólafur G. Flóvenz um um starfsemi Íslenskra orkurannsókna á síðasta ári sem var fyrsta heila starfsár fyrirtækisins. Síðan taka við erindi starfsmanna ÍSOR um Reykjanes frá ýmsum sjónarhornum. Kristján Sæmundsson fjallar um jarðfræði og auðlindir á Reykjanesskaga, Sverrir Þórhallson um orkuvinnsluna og Haukur Jóhannesson um útivist og auðlindanýtingu.

Einnig mun Júlíus Jónsson forstjóri Hitaveitu Suðurnesja greina frá framtíðarsýn HS og Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra orkumála, ávarpar fundinn.

Að loknum fundinum verður síðan skoðunarferð um Reykjanes.

Menningarverðlaun DV (03.03.2005)
Fimmtudaginn 25 febrúar 2005 voru Menningarverðlaun DV veitt. Þetta var í fyrsta skipti sem veitt voru verðlaun í flokki fræða og hlaut Tjörnesverkefnið, svokallaða, þennan heiður. Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands veitti verðlaununum móttöku fyrir hönd allra samstarfsaðila en meðal þeirra eru Íslenskar orkurannsóknir. Verkefnið hefur verið fjármagnað af Rannsóknasjóði,Vísindasjóði og Markáætlun RANNÍS, iðnaðarráðuneytinu, Rannsóknasjóði HÍ og Hafrannsóknastofnuninni. Ennfremur hafa erlendir samstarfsaðilar greitt eigin kostnað og hluta af skipatíma hér við land.

Á myndinni er nýtt kort af hafsbotninum í Tjörnesbrotabeltinu og á sunnanverðum Kolbeinseyjarhrygg.

Mjög góður árangur af borun við Hjalteyri (28.01.2005)
Þorsteinn Egilsson við mælingar
Í gær, 27. janúar 2005, lauk borun um 1500m djúprar holu á Arnarnesi við Hjalteyri við Eyjafjörð. Markmiðið var að hitta djúpt í sprungur, sem tengjast því öfluga jarðhitakerfi sem þar fannst við rannsóknir ÍSOR fyrir Arnarneshrepp og Norðurorku fyrir fáeinum árum.

Á myndinni er Þorsteinn Egilson, jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR á Akureyri, í mælingabíl við prófun á holunni aðfaranótt 28. janúar.
Geta komið stórar flóðbylgjur upp að ströndum Íslands? (26.01.2005)
Svarið við því er já. Mestu flóðbylgjur sem gera má ráð fyrir að komi upp að ströndum landsins munu orsakast af hruni í landgrunnsbrúnum meginlandanna sitt hvoru megin við Atlantshaf. Þekkt eru allmörg dæmi um slík framhlaup úr norsku landgrunnsbrúninni. Stærsta og best þekkta framhlaupið er Storegga-framhlaupið sem varð fyrir um 7.300 árum.
Jose Rial í heimsókn (11.01.2005)
Dagana 14–17 janúar verður prófessor Jose A. Rial hér á landi til að kynna rannsóknir sem gerðar voru í Kröflu síðastliðið sumar. Hann heldur fyrirlestur í sal Orkustofnunar mánudaginn 17. janúar klukkan 11.
100 ára afmæli rafvæðingar minnst (05.01.2005)
Undanfarin ár hefur Norðurorka haldið málþing um starfsemi fyrirtækisins og rannsóknir á þess vegum á því ári. Þann 30. desember sl. stóð Norðurorka fyrir slíku málþingi og var þar jafnframt minnst 100 ára afmælis rafvæðingar á Íslandi. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði hornstein að Glerárvirkjun og afhenti jafnframt formlega virkjunarleyfi fyrir þeirri virkjun. Franz Árnason forstjóri Norðurorku sagði frá starfsemi og framkvæmdum á vegum Norðurorku.
Erla Halldórsdóttir látin (28.12.2004)
Erla Halldórsdóttir
Erla Halldórsdóttir, starfsmaður ÍSOR, lést að morgni aðfangadags jóla, 55 ára að aldri. Erla hóf störf við efnagreiningar hjá Jarðhitadeild Orkustofnunar, forvera Íslenskra orkurannsókna, sumarið 1980. Því starfi sinnti hún í rúm þrú ár. Þá flutti hún ásamt eiginmanni sínum, Gesti Gíslasyni, jarðfræðingi, til Kenya og síðar Uganda þar sem Gestur vann við þróunaraðstoð í jarðhitamálum. Í Úganda hóf Erla að reka á eigin vegum hjálparstarf fyrir ungar bjargarlausar stúlkur, sem misst höfðu foreldra vegna alnæmis. Eftir að þau Gestur fluttu heim til Íslands stýrði Erla hjálparstarfinu úr fjarlægð. Á síðastliðnu ári og beitti hún sér m.a. fyrir stofnun félagsins Alnæmisbarna. Um þau samtök má lesa á heimasíðu þeirra, http://www.hiv-born.is/.

Útför Erlu fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 30. desember kl 13:00 og verða skrifstofur ÍSOR lokaðar eftir hádegi þann dag.

Hreinsun á Þelamörk (14.12.2004)
Undanfarna daga hefur staðið yfir hreinsun á LÞN-10, einni af vinnsluholum Norðurorku.
Heitt vatn fundið í Húsadal í Þórsmörk. (01.12.2004)
Holan er rúmlega 1 km djúp og gefur í sjálfrennsli um 2,5 lítra á sekúndu af um 40°C heitu vatni. Með virkjun holunar er líklegt að ná megi upp um 50-60°C heitu vatni. Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarðfræðingur hjá ÍSOR annaðist jarðhitaráðgjöfina.
Frumkvöðull í nýtingu jarðhita til iðnaðar hættir störfum (01.12.2004)
Kísiliðjan
Þriðjudaginn 30. nóvember 2004 var drepið á vélum Kísiliðjunnar, henni lokað og rekstur lagður af. Blendnar tilfinningar eru meðal landsmanna og mikið skarð er höggvið í atvinnumöguleika í sveitarfélaginu með keðjuverkandi áhrif víða um land.
Frá sjónarhóli jarðhitanýtingar er söknuður af þessu fyrirtæki. Kísiliðjan markar sess í sögu nýtingar þessarar mikilvægu auðlindar landsmanna.
Haustfundur Jarðfræðafélagsins í Öskju (23.11.2004)
Jarðfræðafélagið
Þann 24 nóvember, frá 13:30-19, verður haldinn haustfundur Jarðfræðafélagsins og verður þema fundarins að þessu sinni:

Hafsbotnsrannsóknir á landgrunni Íslands
Málþing um niðurdælingu. (16.11.2004)
Miðvikudaginn 10. nóvember s.l. hélt Jarðhitafélag Íslands málþing um niðurdælingu affallsvatns í jarðhitakerfi, þar sem Guðni Axelsson og Sverrir Þórhallsson, ÍSOR, og Stefán Arnórsson, HÍ, og Þorleikur Jóhannesson, Fjarhitun, höfðu framsögu.
Ný goshrina í Vatnajökli (03.11.2004)
Grímsvötn
Að mati Magnúsar Tuma Guðmundssonar virðist ný goshrina hafin í Grímsvötnum sem eru talin með mestu jarðhitasvæðum í heimi.
Metmánuður í borholumælingum. (05.10.2004)

Í lok september höfðu verið mældir tæplega 500 km samanlagt í borholum, sem er 20 km lengra en loftlína frá Reykjanestá að Fonti á Langanesi, og ef fer sem horfir þá verður árið 2004 metborholumælingaár.
Íslendingar taka þátt í átaki til rafmagnsframleiðslu úr jarðhita í Austur Afríku. (28.09.2004)

Verkefnið verður fjölþjóðlegt samvinnuverkefni og er átak til að ýta undir nýtingu jarðhita til raforkuframleiðslu í Austur Afríku.
Nýtt XRD tæki hjá ÍSOR (22.09.2004)
Sigurður Sveinn við XRD
.
Í byrjun október mun nýtt röntgentæki til efnagreininga (X-ray diffraction) verða tekið í notkun hjá Íslenskum orkurannsóknum en nú er unnið að uppsetningu tækisins.
Hiti í Kerlingarfjöllum (12.09.2004)
Magnús Ólafsson mælir hita
Í sumar hefur verið unnið að yfirlitsrannsóknum, kortlagningu og sýnatöku á nokkrum háhitasvæðum landsins að undirlagi Orkustofnunar. Einn þessara staða er í Kerlingarfjöllum en þar voru Árni Hjartarson og Magnús Ólafsson jarðfræðingar á ÍSOR á ferð í ágúst. Í Kerlingarfjöllum er verið að byggja upp ferðamannaaðstöðu með skemmtilegum gönguleiðum um nágrennið bæði til skoðunar á jarðhitanum og til fjallgangna fyrir þá sem brattgengari eru. Hin gömlu skíðasvæði eru snjólítil og aðstaða til skíðaiðkunar er ekki lengur fyrir hendi.

Tveir Íslendingar í stjórn IGA (10.09.2004)
Ólafur og Gestur
Skrifstofa Alþjóðajarðhitasambandsins tekur til starfa á Íslandi (05.09.2004)
Valgarður
Að minnsta kosti 7 nýjar hverastrýtur hafa fundist á botni Eyjafjarðar. (01.09.2004)
Ísor eins árs (01.07.2004)
Sex skip á sjó í sumar (23.06.2004)
ÍSOR aðili að rekstri fimmtándu öflugustu tölvu Norðurlanda. (09.06.2004)
Doktorspróf (19.05.2004)
Íslenskir jarðhitasérfræðingar að störfum í Uganda. (30.04.2004)
Knútur í Uganda
Hitaveita fyrir Grundarfjörð í sjónmáli (25.03.2004)
Borað á Berserkseyri
Blástursprófun holu ÞG-2 á Þeistareykjum (05.03.2004)
Þeistareykir01
Nýtt rannsóknatæki. (12.02.2004)
Tveir nýir starfsmenn ráðnir til ÍSOR á Akureyri (30.01.2004)
Ný og öflug PC vinnustöð fyrir hafsbotnsrannsóknir (16.01.2004)
Straumhvörf í orkumálum Eyfirðinga (06.01.2004)
Fulltrúi ÍSOR á AGU (20.12.2003)
Bjarni Richter á AGU
Borun á Þeistareykjum lokið (19.12.2003)
sleipnir2.JPG
Jarðhitaverkefni í Íran. (19.12.2003)
Borundur á Þeistareykjum (10.12.2003)
Djúpborunarverkefni fær alþjóðlega viðurkenningu. (06.12.2003)
Útskrift frá Jarðhitaskólanum. (26.11.2003)
Ráðgjafastörf í Guadeloupe. (19.11.2003)
Borun lokið á Nesjavöllum (13.11.2003)
Framhald á djúpborunarverkefni (13.11.2003)
Borun í Hágöngum lokið (18.09.2003)
Borun í Hágöngum (18.08.2003)
man_jotunn
Borun á Hellisheiði (17.08.2003)
Jarðborinn Jötunn
Heitavatnsleit í Grímsey (21.07.2003)
Sérfræðingar ÍSOR í austurvegi (21.07.2003)
Starfsmenn ÍSOR halda til Chukotka til ráðgjafastarfa
TEM-mælingar við Geysi (09.07.2003)
Geysissvæðið verður rannsakað ítarlega m.a. með TEM mælingum
Nýr vefur (08.07.2003)
logo
Ný stofnun - nýr vefur





Ljósm: Sigurður Ýmir Richter