Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa náð samkomulagi við þýska borfyrirtækið Daldrup & Söhne AG (www.daldrup.eu) um að sinna mælingum í tveimur borholum sem þeir eru nú að bora í lághita við Heemskerk í Hollandi.
Fjöldi innlendra sem erlendra sérfræðinga og stjórnenda heimsótti í vikunni alþjóðlega jarðhitaráðstefnu (Iceland Geothermal Conference 2013) hér á landi.
ÍSOR og Orkusetur boða til hálfs dags fundar um jarðgrunnsvarmadælur og evrópska samstarfsverkefnið ThermoMap,
þriðjudaginn 5. mars kl. 13.00 – 16.00 í fundarsal ÍSOR, Víðgelmi, Grensásvegi 9.
Borun á fyrstu djúpu rannsóknarholunni í jarðhitasvæðið við Hoffell í Hornafirði er nú lokið með góðum árangri. Til að staðsetja holuna var notast við holusjármælingar auk hinna hefðbundnu hitastigulsmælinga.
Í sumar kom út hjá Elsevier forlaginu í Oxford átta binda fræðsluverk um endurnýjanlega orku. Verkið hlaut á dögunum hin viðurkenndu PROSE verðlaun sem veitt eru fyrir stór alfræðirit.
Íslenskar orkurannsóknir og Landsvirkjun hafa gefið út nýtt jarðfræðikort, í mælikvarðanum 1:100 000. Kortið nær yfir nyrðri hluta Norðurgosbeltis Íslands, eða svæðið frá Öxarfirði í norðri til Fremrináma í suðri.
Þann 4. janúar nk. mun norski olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe undirrita tvö sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu fyrir hönd norska ríkisolíufélagsins Petoro.