Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og jarðfræðistofnun Kína, China Geological Survey (CGS), undirrituðu viljayfirlýsingu í gær um væntanlegt samstarf á sviði jarðvísinda með sérstaka áherslu á jarðhita.
Ársfundur ÍSOR var haldinn í húsakynnum ÍSOR þann 8. mars, að Grensásvegi 9. Yfirskrift fundarins var Umhverfi og auðlindir. Fundinum var streymt beint og er hægt að horfa á útsendinguna hér á YouTube-rás ÍSOR. Ársskýrsluna má nálgast hér á vefnum.
Ársfundur ÍSOR 2018 verður haldinn að Grensásvegi 9, fimmtudaginn 8. mars, kl. 8.30-11. Húsið verður opnað kl. 8.15 með morgunverðarhlaðborði. Smellið áfram til að sjá hlekkinn á beina útsendingu sem hefst kl. 9.
Undanfarna daga og vikur hefur staðið yfir afskaplega mikil jarðskjálftahrina skammt austur af Grímsey. Þetta er mjög þekkt jarðskjálftasvæði sem er hluti af plötuskilunum sem liggja um Ísland.
Um miðjan janúar fór sendinefnd frá Íslandi til Indlands til að ræða samstarf í jarðhitamálum. Undirrituð var samstarfsyfirlýsing ÍSOR og CEGE, öndvegisseturs í jarðhita við olíuverkfræðiháskólann í Ahmendabad.
Einar Tjörvi Elíasson, fyrrverandi yfirverkefnisstjóri Rannsóknasviðs Orkustofnunar, forvera ÍSOR, lést á Landspítalanum að morgni 9. janúar, rétt orðinn 88 ára.
Ársfundur ÍSOR 2018 var haldinn að Grensásvegi 9, fimmtudaginn 8. mars, kl. 8.30-11. Streymt var beint frá fundinum og eru upptakan aðgengileg á YouTub rás ÍSOR.
Þann 17. nóvember var jarðhitavirkjun Landsvirkjunar á Þeistareykjum formlega vígð. ÍSOR óskar Landsvirkjun til hamingju með þetta stóra skref í jarðhitanýtingu á Íslandi. Í þessum áfanga hófst framleiðsla á 45 MW af rafmagni og gert er ráð fyrir að næsta vor muni önnur 45 MW bætast við.
Eftirfarandi texti er tekinn saman til nánari útskýringar á röksemdafærslunni í grein Ólafs G. Flóvenz hér á vefsíðu ÍSOR (23.11.2017) um eldsumbrot í Öræfajökli:
Það hefur varla farið fram hjá neinum að Öræfajökull er að rumska eftir tæpra þriggja alda svefn. Vísbendingarnar um það eru af þrennum toga. Hugleiðingar Ólafs G. Flóvenz jarðeðlisfræðings og forstjóra ÍSOR.
Nýverið var jarðvarmasamstarf Rúmena og Íslendinga eflt með fræðslu- og kynningarheimsóknum. Í sumar kom 15 manna sendinefnd hingað til lands í þriggja daga heimsókn.
ÍSOR er þátttakandi í einu stærsta rannsóknarverkefni Surtseyjar frá upphafi. Verkefnið hófst nú í byrjun ágúst og er tilgangur þess að varpa ljósi á myndun og þróun eldfjallaeyja með því að samþætta eldfjallafræði, jarðeðlisfræði, jarðefnafræði, mannvirkjajarðfræði og örverufræði.
Borun fjórðu rannsóknarholunnar við Hoffelli í Hornafirði er nú lokið og allt stefnir í góðan árangur. ÍSOR hefur á undanförnum árum leitað að jarðhita og séð um rannsóknir á svæðinu fyrir RARIK, en Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hefur séð um borunina.
ÍSOR hefur opnað nýja jarðfræðikortavefsjá þar sem hægt er að skoða jarðfræðikort af Íslandi í mælikvarðanum 1:600 000 og af Suðvesturlandi og Norðurgosbeltinu í mælikvarðanum 1:100 000.
Undanfarið hafa fjölmiðlar greint frá meintri arsenmengun í sýnum sem tekin voru í grennd við verksmiðju United Silicon í Helguvík og mistökum eða galla í sýnatöku eða niðurstöðum efnagreininga. Greint hefur verið frá því að efnasýnatakan hafi verið í höndum fyrirtækisins Orkurannsóknir ehf, stundum kallað Orkurannsóknir Keilis. Í sumum fréttum og umfjöllunum hefur því ranglega verið haldið fram að um sé að ræða Íslenskar orkurannsóknir.
Ársfundur ÍSOR var haldinn í Hofi á Akureyri föstudaginn 24. mars. Yfirskrift fundarins var „Orkuvinnsla úr rótum háhitakerfa“ þar sem kynnt voru fjölbreytt verkefni sem ÍSOR hefur tekið þátt í og miða að því að auka þekkingu á sviði nýtingar jarðhita úr rótum háhitakerfa.
Á málstofu Orkustofnunar síðastliðinn miðvikudag kynnti Björn Már Sveinbjörnsson, tæknifræðingur hjá ÍSOR, rannsóknarskýrsluna „Medium Enthalpy Geothermal Systems in Iceland". Þar kemur m.a. fram að hægt væri að nýta betur borholur á 29 svæðum sem eru einungis nýtt að hluta til.
ÍSOR auglýsir tvö laus störf. Annars vegar er starf í boði í tölvuþjónustu við starfsfólk og hins vegar er verið að leita eftir sérfræðingi á fjármáladeild eða bókara sem sinnir ýmsum störfum á sviði fjármála. Sjá nánar: Laus störf
ÍSOR er þátttakandi í nýju rannsóknarverkefni í Mexíkó þar sem ætlunin er að rannsaka mjög heit jarðhitakerfi (>350°C) sem og kerfi sem hafa verið örvuð. Verkefnið ber heitið GEMex (Cooperation in Geothermal energy research Europe-Mexico for development of Enhanced Geothermal Systems and Superhot Geothermal Systems).
Mánudaginn 9. janúar nk verður dr. Maryam Khodayar jarðfræðingur hjá ÍSOR með erindi undir yfirskriftinni. Þverfagleg greining á höggun og jarðfræði: Frá olíuleit til jarðfræði
Íslands og jarðhitaleitar. Fyrirlesturinn verður haldinn í fundarsalnum Víðgelmi að Grensásvegi 9 og hefst kl. 13.00.
Jarðfræðikort af Suðvesturlandi. Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa gefið út endurbætt jarðfræðikort af Suðvesturlandi í mælikvarðanum 1:100 000. Þetta er önnur útgáfa af kortinu en það kom fyrst út árið 2010 og hefur verið uppselt í um ár.
Nýlega var lokið borun á nýrri holu fyrir Skagafjarðarveitur, LH-4 við Langhús, og tókst vel til. Vatnsmagnið úr nýju holunni reyndist miklu meiri en væntingar voru til og hitinn hærri. Það verður notað í hitaveitu um Fljótin sem Skagafjarðarveitur eru nú að leggja.
Við hjá ÍSOR samgleðjumst öllum sem tóku þátt í CarbFix-verkefninu sem gengur út á að finna leiðir til að binda koltvísýring í bergi. Grein um árangurinn birtist í vísindatímaritinu Science í dag.
Ársskýrsla ÍSOR fyrir árið 2015 er komin út. Þar er farið yfir starfsemina í stórum dráttum og skrifað um verkefni tengd háhita-, lághita- og náttúrufarsrannsóknum hér heima og í útlöndum, sem og þátt sérfræðinga ÍSOR í kennslu og þjálfun. Árið 2015 var ÍSOR hagstætt.
Ragna Karlsdóttir, verkfræðingur hjá ÍSOR, var heiðruð fyrir störf sín í jarðhita af alþjóðlegum samtökum kvenna í jarðhita (WING). Athöfnin var haldin í tengslum við alþjóðlega jarðvarmaráðstefnu, IGC2016, sem fór fram í Reykjavík 26.–28. apríl síðastliðinn.
Í síðustu viku lauk tveggja vikna námskeiði í jarðeðlisfræðilegum aðferðum við jarðhitaleit, sem haldið var á Azor-eyjum fyrir starfsfólk EDA (Electricity Company of the Azores) og Háskólann á Azor. Leiðbeinendur voru jarðeðlisfræðingarnir Gylfi Páll Hersir og Hanna Blanck.
ÍSOR hefur um áratugaskeið ráðið til sín nokkurn hóp háskólanema til ýmissa starfa. Fjöldinn hefur ráðist af umfangi verkefna á sviði jarðhitarannsókna á Íslandi og svo verður einnig nú.
ÍSOR auglýsti fyrir nokkru sjö störf vegna aukinna umsvifa í jarðhita- og rannsóknarverkefnum. Alls bárust rúmlega 300 umsóknir, sem var framar björtustu vonum.
ÍSOR, áttu aðild að fimm umsóknum til rannsóknaráætlunar Evrópusambandsins, Horizon 2020, á síðasta ári. Nýverið voru fjórar af þessum umsóknum samþykktar, sem verður að teljast mjög góður árangur í styrkumsóknum.
Góður árangur hefur orðið af borun tveggja rannsóknarholna við Hoffell í Hornafirði nú í haust. Holurnar eru um 500 m djúpar og gaf önnur holan við lok borunar um 20 L/s af liðlega 70°C vatni í sjálfrennsli og hin staðfesti yfir 60°C hita á 500 m dýpi svo væntingar um að þarna muni fást nægt vatn fyrir hitaveitu til Hafnar hafa aukist.
ÍSOR hefur gert samning við fyrirtækið Emerging Power Inc. um áframhaldandi vinnu vegna borframkvæmda á jarðhitasvæðinu Montelago á Filippseyjum. Í fyrstu umferð er áformað að reisa virkjun til að framleiða allt að 20 MW rafmagn.
Í Fréttablaðinu í dag birtist grein eftir Ólaf G. Flóvenz forstjóra ÍSOR um villandi umræður í fjölmiðlum um jarðhitaauðlindina og nýtingu hennar. Bent er á að oft er ekki leitað álits sérfræðinga sem gerst þekkja málin og hafa stundað rannsóknir áratugum saman.
Í septemberhefti Læknablaðsins árið 2015 er grein eftir Helga Tómasson, prófessor í hagrannsóknum og tölfræði við Háskóla Íslands. Hún ber heitið „Háhitasvæði og krabbamein: misskilin tölfræði“
ÍSOR hefur gefið út fyrsta jarðfræðikortið af suðurhluta Norðurgosbeltisins, þ.e. Ódáðahrauni og nágrenni. Kortið nær til margra af helstu náttúruperlum landsins, s.s. Herðubreiðar, Krepputungu, Öskju, Kverkfjalla og Suðurárbotna. Einnig má nefna yngsta hraun landsins sem kom upp í Holuhrauni 2014-2015.
Nýverið lauk tveggja vikna námskeiði á Azoreyjum í borholumælingum, prófunum og mati á afköstum borholna, Short Course III on Borehole Geophysics in Geothermal Development. Námskeiðið var haldið á vegum Jarðhitaskólans en starfsfólk ÍSOR sá um þjálfun og kennslu.
Á lághitasvæðum hérlendis hefur oft verið litið á boranir eftir jarðhitavatni sem áhættumál. Þetta er dýr framkvæmd og ekki síður tímafrek. Það kemur skýrt fram í jarðhitaleitarsögu í Kjós. Þórólfur H. Hafstað, einn af sérfræðingum ÍSOR, flytur erindi um lághitakerfið við Möðruvelli í Kjós á fagfundi Samorku sem fram fer dagana 28.-29. maí.
ÍSOR býður starfsmönnum sínum að gera samgöngusamning sem felst í að starfsmenn skuldbinda sig að nota vistvænan samgöngumáta á leið sinni til og frá vinnu.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur nú sitt 37. starfsár. Stór hluti kennslu nemenda við skólann er í höndum starfsmanna ÍSOR og er það því mikið tilhlökkunarefni þegar nýr hópur nemenda birtist á hverju vori.
Formlegum hluta Alþjóðajarðhitaráðstefnunnar, World Geothermal Congress, WGC2015, er nú lokið í Melbourne í Ástralíu. Boðið er upp á skoðunarferðir um virkjanir og jarðhitasvæði á Nýja Sjálandi á næstu dögum. Eftir fimm ár fer ráðstefnan fram hér á landi.
Hópur sérfræðinga frá ÍSOR tekur þátt í Alþjóðajarðhitaráðstefnunni, World Geothermal Congress, dagana 19.-24. apríl. Ráðstefnan er að þessu sinni haldin í Melbourne í Ástralíu.
ÍSOR leitar að metnaðargjörnum einstaklingi í starf borverkfræðings. Starfið felur í sér hönnun borholna og borferla, kostnaðargreiningu, tilboðsgerð, eftirlit með borverki og almenna verkfræðivinnu.
ÍSOR hefur verið með sérfræðinga að störfum meira og minna allt síðasta ár á eyjunni Mindoro á Filippseyjum vegna jarðhitaverkefna. Bandaríska fréttastofan Voice of America birti á dögunum umfjöllun um framkvæmdirnar.
ÍSOR leitar að áhugasömum einstaklingi til að sinna starfi launafulltrúa ásamt ýmsum störfum á sviði fjármála. Nánari upplýsingar má lesa hér á vefnum undir laus störf.
ÍSOR hefur gefið út nýtt berggrunnskort af Íslandi í mælikvaðanum 1:600 000. Hið nýja jarðfræðikort byggist á gömlum grunni en birtir einnig fjölmargar nýjungar og er alfarið unnið í samræmi við nýjar alþjóðlegar skilgreiningar á skiptingu jarðsöguskeiða sem gengu í gildi 2012.
Sigrún Magnúsdóttir, nýr umhverfis- og auðlindaráðherra, heimsótti ÍSOR í morgun og kynnti sér starfsemina. Að því tilefni var henni afhent nýtt berggrunnskort af Íslandi sem ÍSOR var að gefa út.
Sérfræðingar ÍSOR sáu um jarðhitanámskeið fyrir ungt vísindafólk í Mexíkó nú í lok nóvember. Nemendur komu víðs vegar að, flestir langt komnir með bachelor-nám, sumir komnir í framhaldsnám og aðrir höfðu nýlega hafið störf í orkugeiranum.
Á undanförnum árum hafa Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) tekið þátt í fjölþjóðlegu verkefni, sem hlotið hefur heitið NAGTEC (Northeast Atlantic Geoscience Tectonostratigraphic Atlas), og snýst um kortlagningu á botni Norðaustur-Atlantshafs.
Jarðfræðingar ÍSOR vinna þessa dagana við jarðfræðikortlagningu norðan Vatnajökuls og með tilkomu nýja hraunsins eru stöðugar vangaveltur í gangi um hvað gerist næst. Meðfylgjandi kort nær frá enda nýja hraunsins eins og staða þess var 7. september og austur fyrir Rifnahnjúk.
Sjófarendur beðnir um að veita staðsetningum jarðskjálftamælanna athygli í von um að hægt sé að forða þeim frá því að lenda í veiðafærum skipa. Dagana 18.–23. ágúst sl.
Þróun jarðhræringanna við Bárðarbungu leiðir af sér ótal spurningar og tilgátur um hvað sé í raun að gerast. Hér á eftir er bent á nokkra athyglisverða þætti og ályktanir sem draga mætti út frá þeim jafnframt því sem jarðskjálftaupptök síðustu tveggja vikna eru sýnd á drögum að nýju jarðfræðikorti ÍSOR af syðri hluta norðurgosbeltisins:
Afar athyglisvert hefur verið að fylgjast með atburðunum við Bárðarbungu undanfarna daga. Jarðskjálftavöktunarkerfi Veðurstofu Íslands hefur þarna sannað gildi sitt. Það snýst ekki bara um að vara við hugsanlegu eldgosi og flóðum heldur ekki síður um að bæta verulega skilning okkar á myndun jarðskorpu Íslands og gerð hennar og eðlisástandi.
Atburðir undanfarinna vikna í Öskju og Bárðarbungu minna okkur á hvað náttúran er kvik og óútreiknanleg og hve nauðsynlegt er að kanna hana eins vel og tök eru á til þess að geta betur brugðist við náttúruvá af ýmsu tagi.
ÍSOR hefur síðastliðin þrjú ár verið með sérfræðiþjónustu vegna jarðhitaborana á eyjunni Dóminíku í Karíbahafi. Því verkefni lauk nú um miðjan júnímánuð.
Sérfræðingar ÍSOR á Akureyri eru meðal leiðbeinenda á alþjólegu námskeiði um örvistfræði norðurslóða (Arctic Microbial Ecology) sem fram fer á Akureyri dagana 15.-28. júní.
Þessa dagana stendur yfir þriggja vikna sérhæft námskeið í viðnámsmælingum hjá ÍSOR. Námskeiðið er haldið fyrir starfsfólk jarðfræði- og námastofnunar Chile.
Nýja holan varð 1704 m djúp og í sjálfennsli gefur holan tæpa 20 L/s en allt að 40 L/s með 120 m niðurdrætti. Vatnið er sjóðandi heitt, við holubotn um 140°C. Þessi árangur verður að teljast nokkuð góður fyrir áformaða hitaveitu í Kjósinni.
Jarðvísindamennirnir Guðni Axelsson, Knútur Árnason og Gylfi Páll Hersir hjá Íslenskum orkurannsóknum, ÍSOR, hafa fengið viðurkenningu Alþjóðajarðhitasambandsins (IGA) fyrir bestu fræðigreinar ársins 2014 tengdar jarðhitarannsóknum.
Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, taka þátt í umfangsmiklu evrópsku rannsóknarverkefni, styrkupphæð til Íslands 1,7 milljónir evra. Rannsóknarverkefnið nefnist IMAGE (Integrated Methods for Advanced Geothermal Exploration) og er til næstu fjögurra ára.
Vinnsluboranir eftir jarðhita eru að hefjast á ný á eldfjallaeyjunni Dóminíku í Karíbahafi. Til stendur að bora tvær 1200-1800 m djúpar holur í þessum áfanga jarðhitaverkefnisins.
ÍSOR leitar að metnaðargjörnum einstaklingum til að bætast í hóp þeirra sem leiða rannsóknir og þróun á sviði jarðvarma, grunnvatns og kolvetna í jörðu.
Nokkrir sérfræðingar ÍSOR eru leiðbeinendur á fimm daga jarðhitanámskeiði í Rúanda þessa vikuna. Um er að ræða þjálfun fyrir sérfræðinga frá Orku- og vatnsveitu (EWSA) Rúanda varðandi rannsóknir og framkvæmd jarðhitaborana
Á sameignlegum fundi umhverfis- og atvinnuveganefndar Alþingis 12. júní 2013 með fulltrúum frá Orkustofnun, ÍSOR og Náttúrufræðistofnun auk Stefáns Arnórssonar, prófessors emeritus, var fjallað um málefni Hellisheiðarvirkjunar og fleira sem tengist jarðhitavinnslu.
Vegna umræðna í fjölmiðlum um jarðhitavirkjanir og misskilnings sem oft gætir í umfjöllun um jarðhitaauðlindina vill ÍSOR koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum:
Út er komið á vegum Veðurstofu Íslands Jöklakort af Íslandi. Kortið sýnir útlínur allra jökla landsins og breytingar þeirra undanfarna öld. Jöklakortið er samvinnuverkefni Veðurstofunnar og ÍSOR.
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa náð samkomulagi við þýska borfyrirtækið Daldrup & Söhne AG (www.daldrup.eu) um að sinna mælingum í tveimur borholum sem þeir eru nú að bora í lághita við Heemskerk í Hollandi.
Fjöldi innlendra sem erlendra sérfræðinga og stjórnenda heimsótti í vikunni alþjóðlega jarðhitaráðstefnu (Iceland Geothermal Conference 2013) hér á landi.
ÍSOR og Orkusetur boða til hálfs dags fundar um jarðgrunnsvarmadælur og evrópska samstarfsverkefnið ThermoMap,
þriðjudaginn 5. mars kl. 13.00 – 16.00 í fundarsal ÍSOR, Víðgelmi, Grensásvegi 9.
Borun á fyrstu djúpu rannsóknarholunni í jarðhitasvæðið við Hoffell í Hornafirði er nú lokið með góðum árangri. Til að staðsetja holuna var notast við holusjármælingar auk hinna hefðbundnu hitastigulsmælinga.
Í sumar kom út hjá Elsevier forlaginu í Oxford átta binda fræðsluverk um endurnýjanlega orku. Verkið hlaut á dögunum hin viðurkenndu PROSE verðlaun sem veitt eru fyrir stór alfræðirit.
Íslenskar orkurannsóknir og Landsvirkjun hafa gefið út nýtt jarðfræðikort, í mælikvarðanum 1:100 000. Kortið nær yfir nyrðri hluta Norðurgosbeltis Íslands, eða svæðið frá Öxarfirði í norðri til Fremrináma í suðri.
Þann 4. janúar nk. mun norski olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe undirrita tvö sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu fyrir hönd norska ríkisolíufélagsins Petoro.
Þann 24. október lést Jens Tómasson jarðfræðingur á 88. aldursári. Jens fæddist þann 22. september 1925 og ólst upp í Reykjavík, tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík og sigldi síðan til náms við háskólann í Osló.
Jarðvísindamenn ÍSOR svipta hulunni af undirheimum landsins þar sem skjálftar brjóta af sér, sprungur og brestir þykja jákvæðir eiginleikar og vökvinn flæðir óhindrað.
Kjósarhreppur stendur núna fyrir borun heitavatnsholu í landi Möðruvalla. Boraðir hafa verið 556 m og sjálfrenna um 10 sekúndulítrar af um 74°C heitu vatni úr holunni.
Jarðfræðingar frá ÍSOR kynntu mastersverkefni sín á ráðstefnu evrópskra framhaldsnema í jarðhita (European geothermal PhD-day) í Pisa á Ítalíu á dögnum.
Ársskýrsla ÍSOR fyrir árið 2011 er komin á vefinn. Þar kemur m.a. fram að verkefnum erlendis hefur fjölgað umtalsvert. Tekjur vegna þeirra hafa aukist um 16% á milli ára í 32,7% af heildartekjum ÍSOR fyrir árið 2011. Aðallega var um að ræða verkefni í Chile, Kenía, Níkaragva, Dóminíku, Króatíu, Eþíópíu og Tyrklandi.
ÍSOR hefur ásamt Jarðborunum verið við rannsóknarboranir á eyjunni Dóminíku í Karíbahafi frá því í byrjun desember. Þetta eru fyrstu rannsóknarboranir á eyjunni en jarðhiti þar hefur verið rannsakaður talsvert og eru miklar vonir bundnar við að hægt verði að nýta hann.
Vetrarmót norrænna jarðfræðinga er nú haldið hér á Íslandi dagana 9.-12. janúar í Hörpu. Starfsfólk ÍSOR er með fjölbreytt erindi á ráðstefnunni, m.a. um bergfræði, grunnvatnsrannsóknir, landgrunnið og hafsbotninn í tengslum við olíurannsóknir, manngerða jarðskjálfta og jarðhitarannsóknir.
Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans um verkefni sín verða haldnir í Víðgelmi, fyrirlestrasal Orkugarðs, Grensásvegi 9, þriðjudaginn 4. október 2011 og hefjast kl. 09:00.
Íslensku ráðgjafarfyrirtækin ÍSOR, Mannvit, Vatnaskil og Verkís gerðu nýlega samning við Kenya Electricity, KenGen, í Kenya um að endurmeta afkastagetu Olkaria-jarðhitasvæðisins og gera hagkvæmnisathugun á fullnýtingu svæðisins. Samningurinn kemur í kjölfar alþjóðlegs útboðs sem ráðgjafa hópurinn vann.
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa nýverið undirritað samning við stjórnvöld á Dóminíku um þjónustu við þær boranir sem Jarðboranir munu sinna í sumar.
Í þættinum Silfri Egils í ríkissjónvarpinu 8. febrúar 2011 átti Egill Helgason viðtal við Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði um ýmislegt sem lýtur að jarðhitasvæðum og nýtingu þeirra.
ÍSOR hefur átt í samstarfi við tyrkneskt orkufyrirtæki, BM-Holding, um langtímaprófun á tveimur vinnsluholum og áhrif jarðhitavinnslunnar á jarðhitageyminn, á fyrirhuguðu virkjunarsvæði í Gümüsköy í vesturhluta Tyrklands.
Í þessari viku (10.-16. október) verður Mario Gonzales, forstjóri jarðhitadeildar ráðuneytis orku- og námamála (MEM) í Níkaragva, á landinu í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÎ).
Vikuna 4.-8. október verður margt um manninn í Orkugarði, en hingað til lands eru komnir yfir 100 sérfræðingar tengdir jarðhita úr fjórum heimsálfum vegna funda um jarðhitamál sem hér verða haldnir undir sameiginlega heitinu "Geothermal Week in Reykjavík".
Vísindavaka Rannís fór fram föstudaginn 24. sept. sl. Mikill áhugi var hjá gestum að skoða ösku frá Eyjafjallajökli í nærmynd, en það var einmitt meginþema ÍSOR á vökunni að reyna að „lesa í öskuna“.
Borun nýrrar rannsóknar- og vinnsluholu fyrir Hitaveitu Siglufjarðar lauk mánudaginn 20. september sl. Holan er 702 m djúp og var boruð af jarðbornum Sögu frá Jarðborunum hf fyrir Rarik sem á og rekur hitaveituna á Siglufirði.
Sunnudaginn 22. ágúst n.k. verða afhjúpaðir minnisvarðar um Dr. Helga Pjeturss (1872-1949). Helgi stundaði nám við Hafnarháskóla og lauk doktorsprófi í jarðfræði 1905, fyrstur Íslendinga til að taka slíkt próf.
Á síðustu Vísindavöku stóð ÍSOR fyrir jarðfræðigetraun fyrir börn og unglinga. Í verðlaun var nýtt jarðfræðikort af Suðvesturlandi og var vinningshafi Þorsteinn Stefánsson, 11 ára Reykvíkingur.
ÍSOR hefur um áratuga skeið unnið að jarðfræðikortlagningu víða um land, þar á meðal á Suðvesturlandi. Gerð hafa verið jarðfræðikort í mælikvörðum 1:20.000–1:50.000 fyrir ýmsa aðila, t.d.
Forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi skjalfestu á dögunum þann ásetning sinn að starfa saman að jarðvarmaverkefnum erlendis.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna er þessa dagana að hefja sitt 32. starfsár. ÍSOR hefur átt farsælt samstarf við skólann frá upphafi og tekið þátt í að þjálfa nemendur frá hartnær 43 löndum.
ÍSOR var þátttakandi í evrópskum degi doktorsnema um jarðhitarannsóknir (European Geothermal PhD day) sem haldinn er í dag, 12. febrúar 2010, í Potsdam í Þýskalandi.
Sendinefnd á vegum norræna þróunarsjóðsins (NDF) var hér í heimsókn á dögunum til að kynna sér jarðhitastarfsemi Íslendinga með væntanlegt samstarf í jarðhitamálum í h
Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, heimsótti ÍSOR í dag og kynnti sér starfsemina. Í för með henni voru Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, Guðjón Axel Guðjónsson, skriftstofustjóri orkumála og Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir sérfræðingur á skrifstofunni.
Dagana 16.-20. nóvember var haldið námskeið um prófanir og mælingar á borholum á vegum ÍSOR að beiðni frönsku jarðhitastofnunarinnar CFG Services. CFG Services tengist frönsku jarðfræðastofnuninni BRGM og sérhæfir sig í þjónusturannsóknum á sviði jarðhita.
Námskeiði á vegum Jarðhitaskólans og LaGeo í El Salvador „Short Course on Surface Exploration for Geothermal Resources“ er nýlokið og tókst í alla staði mjög vel.
Um þessar mundir eru liðin tíu ár frá því að fyrirrennari Íslenskra orkurannsókna, Rannsóknasvið Orkustofnunar, setti á laggirnar starfsstöð á Akureyri í samstarfi við Háskólann á Akureyri.
Starfsmenn ÍSOR koma víða við sögu þegar velja þarf staði fyrir borholur, hvort sem ætlunin er að vinna úr þeim kalt eða heitt vatn eða volgan jarðsjó.
Í tengslum við formlega stofnun alþjóðlegs rannsóknaklasa í jarðhita, GEORG (GEOthermal Research Group), er efnt til opins málþings um jarðhitarannsóknir og nýtingu jarðhita.
Ársfundur ÍSOR verður haldinn í Salnum í Kópavogi, föstudaginn 27. mars nk. Meginþema fundarins verður jarðfræði og auðlindir vestara gosbeltisins. Allir eru velkomnir.
Dagskrá:
ÍSOR hefur um áratugaskeið ráðið til sín nokkurn hóp háskólanema til ýmissa starfa. Undanfarin ár hafa 15-20 nemar verið í sumarstörfum hjá ÍSOR í tvo til þrjá mánuði hver.
Að gefnu tilefni verður að leiðrétta misskilning sem hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og varðar hugsanlegan olíuauð og olíuvinnslu á Drekasvæðinu milli Íslands og Jan Mayen.
ÍSOR annast borholumælingar Landsvirkjunar í Kröflu. Þegar jarðborinn Jötunn var að bora holu nr. KJ-39 vöknuðu fljótlega grunsemdir um mjög háan hita neðan við 2800 m.
ÍSOR hefur undanfarin ár unnið að jarðfræði- og jarðeðlisfræðilegum mælingum vegna undirbúningsvinnu fyrir olíuleit á Drekasvæðinu við Jan Mayen hrygg. Eins og kom fram í Fréttablaðinu sl.
Með þessum nýja mælibúnaði rekur ÍSOR nú þrjá sérútbúna bíla til hita- og þrýstimælinga í háhitaholum.
Helstu nýjungar eru þær að sérstakur mæligámur var útbúinn með glussaspili og tveimur tromlum fyrir mælivír.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna fagnar þrjátíu ára afmæli sínu með ráðstefnu á Grand Hóteli Reykjavík 26.-27. ágúst og hefst dagskrá kl. 9:00 báða dagana. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um jarðhita og þróunaraðstoð.
Saga, bor Jarðborana, hefir lokið við borun 1500 m djúprar holu í mynni Borgardals á Kópsvatni. Holan er boruð fyrir Hitaveitu Flúða. Borunin gekk mjög vel og árangur er afskaplega góður. Við fyrstu prófanir á holunni fengust um og yfir 70 l/sek af 110°C heitu vatni. Holan er með bestu lághitaholum sem boraðar hafa verið.
Debrecen háskólinn í Ungverjalandi hefur ákveðið að bæta við námsbraut í vinnslu jarðhita og nýtingu hans til húsahitunar. Tveir hópar prófessora og lektora frá skólanum, samtals 15 manns, sækja Ís
Alecksey Mosquera Rodriguez, ráðherra raforkumála og endurnýjanlegrar orku í Ekvador er í heimsókn á Íslandi dagana 7.-10. júlí í boði iðnaðarráðherra og heimsótti m.a. Orkugarð síðastliðinn mánudag.
Í jarðskjálftunum undanfarna daga mynduðust sprungur nálægt fjallsbrúnum Reykjafjalls austan Hveragerðis. Að ósk Hveragerðisbæjar fóru þeir Kristján Sæmundsson og Jónas Guðnason jarðfræðingar hjá ÍSOR í könnunarferð 3. júní til að skoða sprungurnar og meta hvort af þeim stafi einhver hætta.
Frá því Suðurlandsskjálftinn reið yfir þann 29. maí hafa starfsmenn ÍSOR verið að rannsaka áhrif jarðskjálftans á borholur, jarðhitakerfi og grunnvatnsstöðu. Slíkar athuganir gáfu miklar upplýsingar um eðli jarðskjálftanna árið 2000.
Háskóli Íslands og ÍSOR hafa undirritað samning um að dr. Halldór Ármannsson hjá ÍSOR gegni starfi gestaprófessors við verkfræði- og raunvísindadeildir HÍ.
Elsa G. Vilmundardóttir jarðfræðingur, og fyrrum starfsmaður Rannsóknasviðs Orkustofnunar, forvera ÍSOR, lést að kvöldi síðasta vetrardags 23. apríl s.l.
Umhverfismál og háhitavirkjanir frá ýmsum sjónarhornum voru þema fimmta ársfundar ÍSOR sem haldinn var á Akureyri, 28. mars. Um 120 manns sóttu fundinn. Hann hófst á því að Ólafur G.
Starfsmenn ÍSOR mældu eðlisviðnám jarðskorpunnar við Upptyppinga í ágúst 2007. Úrvinnsla mælinganna hefur staðið yfir undanfarna mánuði og er nú lokið.
Borkjarnaskanni var nýlega prufukeyrður á ÍSOR en hann er eina tækið sinnar tegundar á Íslandi. Borkjarnaskanninn og smartCIS-kerfið (Camera Image Scanner) voru keypt fyrir djúpborunarverkefnið (
ÍSOR mun ráða til sín nemendur á háskólastigi til ýmissa starfa í sumar, t.d. á sviði jarðeðlisfræði, forðafræði, jarðfræði, jarðefnafræði og verkfræði.
Emilio Rappaccioli orkumálaráðherra Níkaragva skrifar í dag undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofnun Íslands um fimm ára þróunarverkefni á sviði jarðhitamála.
Þessa vikuna stendur yfir námskeið í Mið-Ameríku um Jarðhitamat og umhverfisstjórnun á jarðhitasvæðum, ”Short Course on Geothermal Development in Central America - Resource Assessment and Envir
Í tengslum við útrás íslenskra orkufyrirtækja hefur mikið verið rætt um skort á sérfræðingum á sviði jarðhita. Á forsíðu morgunblaðsins 25. október er fjallað um þessi mál og rætt við Ólaf G.
Í umfjöllun í fréttum Sjónvarpsins laugardagskvöldið 13 . október um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og samning hennar við Reykjavík Energy Invest sagði meðal annars:
Jarðhitafélag Íslands heldur haustþing sitt um alþjóðlega þróun og horfur á sviði jarðhitanýtingar, þriðjudaginn 9. október í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1.
Þingið er haldið í tengslum við aðalfund Alþjóða jarðhitafélagsins (International Geothermal Association – IGA) og verða öll erindi á ensku.
Rannís stendur í þriðja sinn fyrir Vísindavöku – stefnumóti við vísindamenn,
föstudaginn 28. september. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vísindamönnum og haldinn
hátíðlegur í helstu borgum Evrópu.
Vísindavakan verður haldin í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu og stendur frá kl. 17.00-21.00.
ÍSOR er þátttakandi ásamt 35 öðrum stofnunum og fyrirtækjum í Evrópu og víðar í verki sem styrkt er af Evrópusambandinu er nefnist ENGINE (ENhanced Geothermal Innovative Network for Europe).
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi Dr. Kristján Sæmundsson jarðfræðing, riddarakrossi, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær 17.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið hefur Iðnaðarráðuneytið lagt fram til umsagnar skýrslu með tillögu að áætlun um útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á no
Orkufyrirtækið Iceland America Energy, sem er að mestum hluta í eigu íslenska fyrirtækisins Enex, hefur samið um smíði og rekstur á 50 MW gufuaflsvirkjun í Kaliforníu og samningar um að leggja hita
Hinn 19. desember undirrituðu Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Ólafur G Flóvenz forstjóri ÍSOR víðtækan samstarfssamning. Markmiðið með gerð samningsins er einkum að:
Þessa daga stendur yfir kjarnaborun á vestursvæðinu í Kröflu, Kjarnaholan KH-5 er staðsett skammt vestur af Hvíthólaklifinu, við veginn sem liggur að holu KV-1, fyrstu djúpu rannsóknarholunni á ve
Nú í gormánuði og ýli kenna nokkrir starfsmenn ÍSOR á námskeiðum, sem haldin eru á vegum Jarðhitaskólans í Kenía og El Salvador, en námskeið þessi eru hluti framlags Íslan
Halldór Ármannson, efnafræðingur og einn helsti sérfræðingur ÍSOR í jarðefnafræði og umhverfismálum hefur verið valinn til að gegna formennsku í WRI, alþjóðasamtökum um samspil vatns og bergs.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hlýðir á Hjalta Franzson útskýra rannsóknir á Hellisheiði Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti í dag, 3.
Á Háskólahátíð á morgun þann 21. október verða kjörnir heiðursdoktororar og einn af þeim er Kristján Sæmundsson sem verið hefur starfsmaður Orkustofnunar og síðar ÍSOR um árabil.
Grein eftir Ólaf G. Flóvenz, forstjóra ÍSOR birt í Morgunblaðinu 17.10.2006 Áhersluatriði:Rannsóknaboranir á háhitasvæðum eru forsenda ákvörðunar um nýtingu eða friðun.
Í fréttum ríkisútvarpsins í gær, 4. október, var fjallað um breytingar sem orðið hafa undanfarið á háhitasvæðinu á Reykjanesi eftir gangsetningu Reykjanesvirkjunar.
Sendinefnd frá Jarðfræðistofnun Kína heimsótti Orkugarð í vikunni. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér jarðhitarannsóknir og jarðhitanýtingu á Íslandi.
Nú hefur náðst sá mikilvægi árangur náðst að gert hefur verið samkomulag við Færeyjar og Noreg sem felur í sér viðurkenningu á landgrunnsréttindum Íslands yfir 29.000 km2 svæði í Síldarsmugunni í b
Jarðskjálftar við Reykjarfjörð syðri á Ströndum nú um daginn virðast hafa komið mörgum á óvart. En það þarf þó alls ekki að að vera óvænt þegar litið er til jarðfræði svæðisins.
ÍSOR hefur gert sérstakan þjónustusamning við Jarðboranir hf. um að annast halla- og stefnumælingar í borholum á Íslandi. Með honum er aukin sú þjónusta sem ÍSOR hefur veitt þeim fram til þessa.
Á Íslenskum orkurannsóknum hefur að undanförnu verið unnið að rannsóknum á koltvísýringsbúskap jarðhitasvæða. Þessar rannsóknir eru tvíþættar og lúta annars vegar að því að ákvarða náttúrulega los
Global Roundtable on Climate Change er hópur u.þ.b. 150 fremstu framkvæmda- og rannsóknaraðila heims á sviði loftslagsvísinda, og þingar á Íslandi um þessar mundir.
Nýlega lauk borun 2280 m djúprar rannsóknarholu fyrir Hitaveitu Suðurnesja í Trölladyngju með aðferð sem ekki hefur verið reynd áður hér á landi við borun háhitaholna.
Holan var staðsett á síðasta ári af starfsmönnum ÍSOR þeim Kristjáni Sæmundssyni og Þórólfi Hafstað og er hún við Köldukvísl á Eyvindarárdal ofan Egilsstaða.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu Þjóðanna var settur 2. maí s.l. Þetta árið verða 4 stúlkur og 15 piltar frá 11 löndum úr fjórum heimsálfum við nám í skólanum.
Í dag fékk ÍSOR afhentan nýjan bíl sem ætlaður er í ýmis verkefni. Bíllinn er í grunninn Mercedes Benz Sprinter en var breytt hjá Achleitner í Austurríki og heitir eftir það Mantra.
Þorsteinn Thorsteinsson, verkfræðingur og fyrrum starfsmaður Jarðhitadeildar Orkustofnunar, forvera ÍSOR, er látinn tæplega 87 ára að aldri. Þorsteinn fæddist árið 1919.
Þann 23. febrúar sl. fjallaði tímarítið Nature um rannsóknir á jarðhita neðansjávar í stuttri yfirlitsgrein. Kveikjan að greininni var ráðstefna “American Geophysical Union” í desember sl.
Góður árangur er kominn af borun í Kelduhverfi. Holan er á eyðinu milli Bakkahlaups og Skálftavatns, og endaði hún í 610 m dýpi, og lýkur borverkinu nú um helgina.
Í lok janúar fóru tveir sérfræðingar ÍSOR til Níkaragúa á vegum ÞSSÍ til að skipuleggja og undirbúa námskeið um jarðhitamál og taka viðtöl við hugsanlega nemendur við Jarðhitaskólann.
Ný vatnshola var boruð í Grábrókarhraun fimmtudaginn 2. febrúar 2006. Holan heitir GB-13 og er 30 m djúp. Hún var boruð með jarðbornum Karli Gústaf frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða (sjá mynd).
Þegar ÍSOR varð til var samþykkt að reyna að halda ársfundi utan suðvesturhornsins annað hvert ár. Fyrsti fundurinn var haldinn á Akureyri og annar í Svartsengi.
Mikið hefur verið að gera í borholumælingum síðasta ár og verður fyrirsjáanlega á komandi árum í tengslum við boranir vegna nýrra háhitavirkjana og rekstur þeirra.
Um þessar mundir er að hefjast vinna við þrjú ný samevrópsk verkefni á sviði jarðhita, sem hlotið hafa myndarlega styrki úr 6. rammaáætlun ESB á sviði vísinda og tækni og ÍSOR er aðili að.
Að þessu sinni lögðust fjórir vísindamenn frá Íslenskum orkurannsóknum í víking alla leið til San Francisco á hina heimsfrægu haustráðstefnu AGU (American Geophysical Union) sem er þar haldin ár hv
Jarðhitabók eftir Guðmund Pálmason, fyrrum forstöðumann Jarðhitadeildar, hlaut í gær tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita ásamt fjórum öðrum fræðibókum.
Eins og kunnugt er hefur verið ákveðið að leggja hitaveitu frá jarðhitasvæðinu við Reyki í Fnjóskadal að sumarhúsabyggðinni á Illugastöðum. Einnig er í skoðun að leggja hitaveitu alla leið til Gre
Landsvirkjun hefur eignast tæplega 32% hlut í Þeistareykjum ehf. með kaupum á nýju hlutafé í félaginu en skrifað var undir kaupin á hluthafafundi sem haldinn var á Breiðumýri í Reykjadal 9.
Í síðustu viku dvöldu Alberto Behar og Jarett Matthews, sem báðir eru verkfræðingar við JPL (Jet Propulsion Laboratory) í Kaliforníu, á Akureyri við prófanir á rannsóknartæki sem þeir eru að smíða.
Ríkisstjórnin tók þá stóru ákvörðun í gær að taka þátt í djúpborunarverkefninu (IDDP) með beinum hætti og fjármagna verkefnið til jafns við orkufyrirtækin á næstu árum. Með því stuðlar ríkisvaldið
Flestir sem koma í Öskju ganga suður að Víti. Á þeirri leið má sjá hjarn undir ljósum vikri úr Öskjugosinu 1875. Gosið varð seinni part vetrar það ár og vikurinn féll á snjó sem þá lá á jörðu.
ÍSOR hefur tekið að sér jarðhitaathuganir á Diskóeyju við Grænland. Aðalbyggðin þar er í Góðhöfn eða Qeqertarsuak sem er 1100 manna bær og vinabær Húsavíkur.
Um þessar mundir er flokkur rússneskra vísindamanna frá háskólanum í Moskvu við mælingar á Hengilssvæði. Mælingarnar eru liður í fjölþjóðaverkefninu INTAS.
Í júlíbyrjun lauk borun holu KH-37 á jarðhitasvæðinu í Kaldárholti, sem er annað tveggja jarðhitasvæða sem Hitaveita Rangæinga nýtir. Orkuveita Reykjavíkur yfirtók rekstur veitunnar í byrjun árs,
Tvær aðrar laugar eru með nöfnum. Skammt sunnan við Biskupslaug var svonefnd Vinnufólkslaug (öðru nafni Hjúalaug) en hún var grafin út fyrir nokkrum árum. Hitinn í henni var aðeins 18°C.
Dagana 26.-30. júlí fóru fram segulmælingar í Hrollleifsdal og við Kálfsstaði í Hjaltadal í Skagafirði en ÍSOR er ráðgjafi Hitaveitu Skagafjarðar í jarðhitaleit.
Á síðasta ári unnu starfsmenn ÍSOR við jarðhitaleit í Úganda á vegum Þróunarsamvinnustofnunar. Nú er hafið framhald á því verki og munu fimm starfsmenn ÍSOR taka þátt í þessum áfanga.
Gagnavefsjá Orkugarðs veitir almenningi aðgang og upplýsingar um gögn í vörslu ÍSOR og Orkustofnunar sem varða náttúrufar og nýtingu jarðrænna orkulinda.
Dagana 24. til 29. apríl verður haldin alþjóðleg jarðhitaráðstefna í Antalya í Tyrklandi.Slíkar ráðstefnur eru haldnar fimmta hvert ár og er þessi sú þriðja.
Nú í apríl var fyrsti borkjarninn í tengslum við djúpborunarverkefnið tekinn á Reykjanesi, á vinnslusvæði Hitaveitu Suðurnesja hf, sem kostar vinnsluholuna.
Á Berserkseyri lætur sveitarfélagið Grundarfjörður bora eftir heitu vatni. Holan er niðri við sjó, og borað er á ská með 27° halla frá lóðlínu til að ná sprungum með heitu vatni þar úti fyrir.
Ársfundur ÍSOR var haldinn 18. mars síðastliðinn í Eldborg í Svartsengi. Ólafur G. Flóvenz fjallaði um rekstur ÍSOR en nú er lokið fyrsta heila rekstrarárinu.
Fimmtudaginn 25 febrúar 2005 voru Menningarverðlaun DV veitt. Veitt voru verðlaun í flokki fræða í fyrsta sinn og hlaut Tjörnesverkefnið, svokallaða, þennan heiður.
Svarið við því er já. Mestu flóðbylgjur sem gera má ráð fyrir að komi upp að ströndum landsins munu orsakast af hruni í landgrunnsbrúnum meginlandanna sitt hvoru megin við Atlantshaf.
Undanfarna daga hefur staðið yfir hreinsun á LÞN-10, einni af vinnsluholum Norðurorku. LÞN-10 á Laugalandi á Þelamörk var upphaflega boruð sumarið 1992 í rúmlega 900 m dýpi.
Fyrir fjórum árum voru boraðar tvær holur í Húsadal í Þórsmörk, önnur eftir köldu neysluvatni og hin til jarðhitaleitar. Báðar holurnar skiluðu jákvæðum árangri, önnur gnótt af köldu vatni, en hin
Hugmyndin er sú að kynna rannsóknir á landgrunni Íslands, ekki bara jarðfræðirannsóknir, heldur snúast hafsbotnsrannsóknir ekki síður um samspil lífræði og jarðfræði, en þá tengingu væri ágætt að s
Niðurdæling er orðin lykilatriði í rekstri fjölmargra jarðhitakerfa um allan heim, en hefur þó verið lítið stunduð á íslenskum jarðhitasvæðum þar til á allra seinustu árum.
Íslendingar taka þátt í átaki til rafmagnsframleiðslu úr jarðhita í Austur Afríku.Í kjölfar ráðstefnu um jarhita sem haldin var í Nairobi í Kenya í fyrra, hefur verið unnið að undirbúningiátaks til
Tækið er af gerðinni D8 Focus frá Bruker AXS í Karlsruhe í Þýskalandi. Aðaleigandi tækisins eru Íslenskar orkurannsóknir en kaupverð var að hluta greitt með styrkfé frá Rannís.
Kerlingarfjöll eru virk megineldstöð og mest af jarðhitanum virðist vera tengdur unglegum öskjubrotum. Hveravirkni er mikil og óvíða munu laugar, hverir og gufuaugu jafn þéttstæð og þar.
Þann fyrsta júlí er eitt ár liðið frá því að Íslenskar orkurannsóknir tóku formlega til starfa. Reynslan af þessu fyrsta ári er góð og verkefnastaða með ágætum.
Hinn 30. desember s.l urðu straumhvörf í orkumálum Eyfirðinga er Norðurorka tók í notkun nýtt jarðhitasvæði á Arnarnesi við Hjalteyri. Merki um jarðhita fundust þar fyrir um 5 árum og síðan hafa starfsmenn ÍSOR unnið að rannsóknum á svæðinu á vegum Arnarneshrepps og síðar Norðurorku.
Alþjóða Jarðhitafélagið (IGA) hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að Íslenska djúpborunarverkefnið sé þróaðasta rannsóknaverkefnið í jarðhita á heimsvísu. Í skeytinu segir orðrétt:
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur verið starfræktur frá 1979 og í október útskrifaði hann 20 nemendur sem komu frá 12 þjóðlöndum. Að venju sinntu starfs
Tveir af jarðfræðingum Íslenskra orkurannsókna þeir Knútur Árnason og Árni Hjartarson eru nú lagðir af stað austur til Chukotka austast í Síberíu, eftir nokkurra daga töf í Moskvu.