Íslensku ráðgjafarfyrirtækin ÍSOR, Mannvit, Vatnaskil og Verkís gerðu nýlega samning við Kenya Electricity, KenGen, í Kenya um að endurmeta afkastagetu Olkaria-jarðhitasvæðisins og gera hagkvæmnisathugun á fullnýtingu svæðisins. Samningurinn kemur í kjölfar alþjóðlegs útboðs sem ráðgjafa hópurinn vann.