Útfellingar og berg
Til greininga á kristalgerð fastra efna, til dæmis útfellingum í lagnakerfum, steindum í bergi og ýmsu öðru, hefur ÍSOR tvö röntgentæki. Bæði tækin eru "X-ray diffractometers" sem notuð eru til röntgenbrotgreininga (X-ray diffraction).
Röntgentæki:
- D8 Focus og frá Bruker AXS í Karlsruhe í Þýskalandi, með sjálfvirkum sýnamatara sem tekur níu sýni.
- PW 1710 frá Philips, tölvustýrt og tekur eitt sýni í einu.
Mæligögn úr báðum tækjum eru meðhöndluð með sérstökum hugbúnaði frá Bruker AXS og niðurstöður oft fengnar með samanburði sýna við gagnagrunn frá International Centre for Diffraction Data en í honum má finna röntgen-mynstur mörg þúsund efnasambanda.
Umsjón með röntgentækjunum hefur Sigurður Sveinn Jónsson, jarðfræðingur.

