Umhverfisrannsóknir
Mat á umhverfisáhrifum er mikilvægur þáttur í hverju jarðhitaverkefni, allt frá fyrstu áætlunum til þess tíma að virkjun er byggð. Í slíku mati felst samanburður við aðra orkukosti sem kunna að byggjast á jarðefnaeldsneyti, vatnsafli, kjarnorku, endurnýjanlegum orkulindum (sólarorku, vindorku, sjávarföllum o.s.frv.), ellegar engum þessara kosta.
Helstu umhverfisþættir í jarðhitanýtingu eru:
- Yfirborðsbreytingar
- Landbreytingar – vökvanám
- Hávaði
- Hitamengun
- Efnamengun
- Verndun
ÍSOR býður alhliða umhverfisþjónustu á öllum stigum nýtingarferlis:
- Skráning á umhverfisbreytingum
- Þyngdar- og hæðarmælingar fyrir nýtingu
- Grunnvatnsrannsóknir
- Niðurdælingarrannsóknir
- Skráning á gasstreymi
Þekkingarstjóri umhverfisrannsókna: Halldór Ármannsson, jarðefnafræðingur.

