Textastærð

-A +A

Stýring jarðhitavinnslu

Víðtæk og virk stýring jarðhitageymis er grundvallarþáttur í góðri jarðhitanýtingu, einkum til að koma í veg fyrir of mikla vinnslu og vinnsluvandamál almennt. Hún byggist á nægilegri/góðri þekkingu á viðkomandi jarðhitakerfi, sem aftur byggist á víðtækum gögnum, upplýsingum og rannsóknum. Mikilvægustu gögnin um eðli og eiginleika jarðhitakerfis fást með nákvæmri skráningu á viðbrögðum þess við langtímaorkuvinnslu. Slík skráningargögn eru grunnurinn að gerð jarðhitalíkans.

ÍSOR veitir víðtæka þjónustu á eftirfarandi sviðum í rekstri jarðhitakerfa:

  • Skráning vinnsluþátta
  • Efnavöktun
  • Skráning á breytingum á jarðhitasvæði
  • Gerð líkans af jarðhitakerfi
  • Skipulag og rannsóknir við niðurdælingu
  • Umhverfisvöktun
  • Mat á endingartíma jarðhitakerfa