Textastærð

-A +A

Jarðfræðikort af Suðvesturlandi

JARÐFRÆÐIKORT AF SUÐVESTURLANDI Í MÆLIKVARÐA 1:100 000Jarðfræðikort af Suðvesturlandi
Kortið byggist á fjölmörgum jarðfræðikortum í mælikvörðum
1:20 000 - 1:50 000 sem unnin hafa verið fyrir ýmsa verkkaupa ÍSOR og forvera þess, Orkustofnun. Kortin hafa verið einfölduð, endurskoðuð og nýjum upplýsingum bætt við. Elstu jarðlögin á kortinu eru rúmlega 4 milljóna ára gömul og þau yngstu eru hraun frá Reykjaneseldum 1211-1240. Alls eru á kortinu um 160 mismunandi hraun.

Á kortinu er bent á 40 áhugaverða staði og eru lýsingar að finna hér á vefnum.

Einnig er hægt að sjá jarðfræðilegt yfirlit Reykjanesskagans.

Hæðarlínur kortsins og örnefni byggjast á ÍS50V grunni Landmælinga Íslands, með viðbótum og leiðréttingum.
Dýptarlínur í sjó eru frá Sjómælingum Íslands.
Kortið er prentað í prentsmiðjunni Odda.

Söludreifing kortsins er í höndum Forlagsins.