Grunnvatnsrannsóknir
ÍSOR býr yfir mikilli sérþekkingu er kemur að grunnvatnsrannsóknum. Þær felast m.a. í sér ráðgjöf fyrir vatnsveitur, fiskeldisstöðvar og vatnsátöppunarfyrrirtæki, skilgreiningu á vatnsverndarsvæðum og eftirlit með grunnvatnsmengun.
ÍSOR kortleggur grunnvatnskerfi/strauma þar sem samspil yfirborðsvatns, jarðvatnsveita og jarðfræðieininga er skilgreint. Kortin eru notuð við áætlanagerð um byggingar og önnur mannvirki og jafnframt við kannanir á umhverfisáhrifum. ÍSOR metur einnig afkastagetu borholna og vatnsveita, og annast efnafræðgreiningar á drykkjarvatni.
Helstu verkefni:
- Staðsetning borholna
- Hönnun borholna
- Mælingar á grunnvatnsmengun
- Skilgreining á vatnsverndarsvæðum
- Ráðgjöf um vatnsveitumannvirki
Þekkingarstjóri grunnvatnsrannsókna: Þórólfur H. Hafstað.

