Gæðastefna
ÍSOR er fyrirtæki í eigu ríkisins sem samkvæmt lögum selur sérhæfða þekkingu á sviði náttúrufars, orkumála og auðlindamála ásamt ráðgjöf og þjónustu byggða á henni. Jafnframt er ÍSOR ein helsta rannsóknarstofnun heims á sviði jarðhita. ÍSOR er, samkvæmt lögum, ætlað að starfa á samkeppnismarkaði, án opinberra fjárveitinga en arði af starfseminni skal varið til að auka rannsóknarfærnina.
Það er stefna ÍSOR að tryggja viðskiptavinum sínum skilvirka þjónustu og áreiðanlega ráðgjöf sem byggð er á bestu fáanlegri tækni og þekkingu á hverjum tíma og tekur tillit til þarfar fyrir vernd og endurbætur í umhverfismálum.
Það felur m.a. í sér að
- öll þjónusta ÍSOR sé í hæsta gæðaflokki
- tryggja að öll ráðgjöf ÍSOR, mælingar og niðurstöður séu vandlega unnar, yfirfarnar og sannprófaðar
- þjóna viðskiptavinum hratt, örugglega og af fagmennsku, ábyrgð og sanngirni
- hafa tiltækt starfsfólk og sérfræðinga í fremstu röð
- stunda rannsóknir og taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi til að styrkja þekkingarstoðir ÍSOR
- búa yfir tækjum og öðrum búnaði sem tryggir áreiðanlegar mæliniðurstöður, viðhalda honum og fylgja eftir þróun í rannsóknartækni
- uppfylla kröfur viðskiptavina og opinberra aðila, m.a. um gæði, öryggi og hollustu
- beita aðferðum gæðastjórnunar samkvæmt ISO-9001:2000 á sem flestum sviðum starfseminnar og vinna að stöðugum umbótum starfseminnar

