Borholumælingar
Prófanir og mat á afköstum borholna útheimta ýmiskonar mælingar til að afla upplýsinga um einkenni borholnanna og afkastagetu þeirra og jafnframt um einkenni og eiginleika hvers jarðhitakerfis. Þetta á einnig við um örvun borholna sem miðar að því að auka afköst nýrra jafnt sem eldri vinnsluholna. Borholuprófanir eru lykilatriði við borun rannsóknarholna, vinnsluholna, viðhald borholna, og skráningu upplýsinga um hvert jarðhitasvæði.
ÍSOR á mælingabíla, auk margháttaðs annars skráningarbúnaðar og tæki til að annast borholumælingar. ÍSOR hefur veitt þessa þjónustu á nær öllum lághita- og háhitakerfum landsins, og víða erlendis.
ÍSOR býður upp á eftirfarandi þjónustu í tengslum við prófanir og mat á jarðhitaholum:
- Mælingar á hita og þrýstingi
- Borholumælingar
- Örvun borholna
- Ferilprófanir
- Mat á fyrirliggjandi holum

